Í dag var margmenni við Seljalandsfoss í dag og staðir eins og göngubrú við fossinn eru vinsælir meðal vasaþjófa. Enda ferðamenn ekki varir um sig fyrir framan fossinn og ekki heldur á öðrum fjölförnum ferðamannastöðum að sögn lögreglu sem greip þrjá glóðvolga vasaþjófa við fossinn í gær, í sérstakri aðgerð óeinkennisklæddra lögreglumanna en lögregla hefur reglulega staðið vaktina með þeim hætti við nokkra ferðamannastaði í sumar. Magnús Ragnarsson varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir vasaþjófana þaulskipulagða.
„Þetta er ákveðinn tími dags, þetta er háannnatíminn þar sem mest er af fólki, þá eru þeir að senda hópa, það eru að fara hópar saman á þessa staði og eru í svona tvo þrjá tíma á hverjum stað og við erum að reyna að stýra inn á það að vera með menn þar innan um ferðamennina að sjá þá og spotta þá út.“
Um sé að ræða erlenda ríkisborgara sem gagngert séu staddir hér á landi til að stunda vasaþjófnað. Verulegar upphæðir séu teknar af stolnum kortum og lögregla fái tugi tilkynninga í hverri viku um vasaþjófnað á ferðamannastöðum líkt og frá Seljalandsfossi. Þetta rímar við upplifun ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
„Það hefur verið mjög mikið, mjög mikið af fólki kemur hingað og segir að það hafi týnt veskinu sínu eða hvað sem er.“
Kemur þetta reglulega upp?
„Já, nokkrum sinnum á dag. Tvisvar, þrisvar á dag.“
Rútubílstjóri segist oft hafa orðið vitni að ferðamönnum lenda í vasaþjófnaði. „Það var í einni rútunni þar sem þrjár manneskjur týndu veskjunum sínum inni í búðinni á Geysi.“
Lögregla biðlar til leiðsögumanna og annarra innan ferðaþjónustunnar um að benda ferðamönnum á að fara varlega. Ferðamenn við Seljalandsfoss höfðu ekkert heyrt af málinu en eitt par hafði sjálft lent í vasaþjófnaði í miðbæ Reykjavíkur.
Vissir þú að það hafa verið nokkur tilfelli af vasaþjófnaði hér við þennan foss?
Nei, ég vissi það ekki. En við lentum í atviki í Reykjavík þar sem við urðum fyrir vasaþjófnaði.
Í alvöru?
Já, fyrir utan vinsælt bakarí sem ég ætla ekki að nafngreina.
Hvað gerðist?
Vinur okkar týndi veskinu sínu. Hann skildi það eftir á afgreiðsluborðinu og einhver tók það og reyndi strax að nota það til að kaupa vörur fyrir 3000 dollara.