Söluskáli Olís á Dalvík lokar 1. nóvember. Söluskálinn er síðasta sjoppan í bænum og eru Dalvíkingar í öngum sínum yfir lokuninni. Söluskálinn er síðasti staðurinn á Dalvík þar sem hægt er að kaupa sér pylsu.
„Högg fyrir bæinn“
Töluverð traffík var í sjoppunni þegar fréttastofa leit við. Söluskálinn skiptir Dalvíkinga máli.
Hvað finnst þér um að hér verði ekki lengur hægt að stoppa og kaupa sér snarl?
„Það er náttúrlega alveg skelfilegt bara. Þetta er eina sjoppan á staðnum. Þetta mætti vera betra,“ segir Júlíus Viðarsson, viðskiptavinur Olís.
Mörgum Dalvíkingum var brugðið þegar pizzastaðurinn Tomman hætti rekstri eftir 27 ára rekstur nú í ágúst. Engar sjoppur verða því eftir á Dalvík.
„Þetta er mjög sorglegt. Högg fyrir bæinn. enda erum við eina sjoppan sem er opin til níu,“ segir Þóra María Fransdóttir, starfsmaður Olís.
Hvað þýðir þetta fyrir starfsfólk?
„Við þurfum náttúrlega að fara að leita að nýrri vinnu. Ég er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera.“