Pólitísk uppsögn á Hagstofu

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Hjörtur J. Guðmundsson er einn fremsti sérfræðingur landsins í Evrópumálum. Um árabil skrifar Hjörtur um Evrópumál og íslensk stjórnmál í fjölmiðla og á stjórnmálin.is. Skrif Hjartar eru ómetanlegt framlag til Evrópuumræðunnar. Hjörtur skrifar í tómstundum og fyrir eigin reikning. Að atvinnu starfaði Hjörtur á Hagstofunni. Þangað til í síðustu viku. Þá var honum sagt upp störfum.
Hagstofan heyrir undir forsætisráðuneytið. Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri staðfestir í viðtali á Vísi að Hirti hafi einum verið sagt upp til að spara fjármuni. Á Hagstofunni starfa um 120 manns. Útskýring Hrafnhildar er mótsögn. Í einn stað segir hún að Hirti hafi verið sagt upp til að spara launakostnað. Í annan stað segir Hrafnhildur að ætlunin ,,fá inn nýja þekkingu.“ Aðferðin til að koma Hirti úr húsi Hagstofunnar var leggja starf hans niður. En það á að ráða annan starfsmann með ,,nýja þekkingu.“
Hjörtur starfaði á samskiptadeild. Deildin sér að koma á framfæri upplýsingum sem verða til á Hagstofunni. Allir sem vita eitthvað um upplýsingamiðlun sjá í hendi sér að Hrafnhildur fer með ósannindi þegar hún réttlætir brottrekstur Hjarnar með þörf á ,,nýrri þekkingu.“ Ríkisstarfsmenn sækja sér nýja þekkingu ef þörf krefur, t.d. með því að læra á ný forrit. Það eru ekki geimvísindi að miðla upplýsingum.
Áður en Hjörtur fékk uppsögnina hafði hann hvorki fengið aðvörun né áminningu. Enginn hafði kvartað undan vinnuframlagi hans eða samskiptum við starfsfélaga. Þeir sem þekkja til Hjartar vita að þar fer hófstilltur og dagfarsprúður maður, orðvar og kurteis.
Tvær skýringar eru líklegastar á þeirri ákvörðun að leggja niður starf Hjartar. Í fyrsta lagi að Hrafnhildur hagstofustjóri hafi viljað kaupa sér velvild í forsætisráðuneytinu með því að gera Hjört atvinnulausan. Hjörtur er gagnrýninn á ESB-aðild Íslands og hefur sýnt fram á að stjórnvöld innleiða ranglega bókun 35 í EES-samningnum með lagafrumvarpi á alþingi. Í öðru lagi að Hrafnhildur hagstofustjóri hafi fengið skilaboð frá forsætisráðuneytinu um að erfitt yrði fyrir stofnunina að fá sitt á fjárlögum með Hjört í starfi.
Hvort heldur sem er fær Hjörtur reisupassann á Hagstofunni fyrir þátttöku í opinberri umræðu um sitt sérsvið, sem eru Evrópumál. Engin málefnaleg rök liggja að baki uppsögninni.
Hausar skulu fjúka er ekki sniðug pólitík vinstrimanna sem tímabundið er treyst fyrir landsstjórninni.