Bláa lónið verður skráð á markað auk þess sem ráðist verður í almennt hlutafjárútboð. Þetta var samþykkt á hluthafafundi í dag. Stefnt er að því að þetta gerist í næsta mánuði.
Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að skráning þess á aðalmarkað Nasdaq Iceland sé stór áfangi í sögu fyrirtækisins. Hún eigi að styrkja og breikka hluthafahópinn og gefa almenningi, fagfjárfestum og starfsfólki tækifæri til að eignast hlutabréf í einu þekktasta fyrirtæki landsins.
Hluthafar samþykktu kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn Bláa lónsins og dótturfélaga þess sem fyrirtækið á 90% eða meira í. Um 700 starfsmenn fá að kaupa hlutabréf fyrir 1,5 milljónir á ári í fimm ár, samtals 7,5 milljónir.