Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Miami minningar
Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir birti strandarmyndir frá Miami og virtist njóta sín vel á þeim.
Ný nærfataauglýsing
Fegurðardrottningin og fyrirsætan Birta Abiba sat fyrir í nýrri herferð hjá nærfatarisanum Adore Me.
Linda Ben á Pussycat Dolls
Bakarinn og áhrifavaldurinn Linda Ben fór í vinkonuferð til Kaupmannahafnar og skellti sér á tónleika stúlknasveitarinnar Pussycat Dolls sem eru með endurkomu um þessar mundir.
Santorini-skvís
Tónlistarkonan Tinna Óðinsdóttir skein skært í appelsínugulum kjól á grísku eyjunni Santorini um helgina.
Bríet heldur út
Poppstjarnan Bríet Isis er á leið til Danmerkur þar sem hún mun halda tvenna tónleika, í Kaupmannahöfn og Árósum.
Laufey rokkaði í Rio
Súperstjarnan og tónlistarundrið Laufey Lín rokkaði í Rio og hélt vel heppnaða tónleika þar. Hún var að klára langt tónleikaferðalag og er búin að selja upp í stórar tónleikahallir víða um heim á undanförnum mánuðum.
Útivistartíminn er búinn
Rísandi samfélagsmiðlastjarnan Unnur Borg birti myndasyrpu af sér og kisunni sinni Batman sem er búinn að vera týndur.
25 ára
Markaðsfræðingurinn Hafdís Sól Björnsdóttir fagnaði 25 ára afmæli sínu og fékk fallegan blómvönd.
Hvítar blúndur
Útvarpskonan Jóhanna Helga Jensdóttir skellti sér út á lífið í hvítum og krúttlegum blúndukjól.
Stjörnupar í París
Athafnamaðurinn og gusumeistarinn Sólon Welding og Ásgerður Diljá markaðsstjóri Aurum fóru í rómantíska ferð til Parísar og birtu myndir af sér með glitrandi Eiffel-turninum.
„Slime áhrif“
Tónlistarkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, tróð upp á Októberfest um helgina og segist vilja hafa „slime“ áhrif á samfélagið.
Í fyrsta skipti í bikiníi
Áhrifavaldurinn Fanney Dóra skellti sér í sólríkt frí og fór í fyrsta sinn í bikiní í útlöndum. Það var bikiní sem hún sjálf hannaði.
Miðnætur-Martini
TikTok stjarnan Embla Wigum fór í partý á lúxus-hótelinu The Mandrake Hotel í London og bað um miðnætur-martini.
„27 og aldrei litið betur út“
Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Brynjar Steinn Gylfason, jafnan þekktur sem Binni Glee, fagnaði 27 ára afmæli sínu 8. september síðastliðinn. Hann átti fjörugt kvöld og segist aldrei hafa litið betur út.
Brosandi Gugga
Skemmtikrafturinn, sjónvarpsstjarnan og áhrifavaldurinn Guðrún Svava Egilsdóttir sem landsmenn þekkja vel sem Guggu í gúmmíbát brosti á Instagram á fallegu kvöldi í Kaupmannahöfn.
Allir í Köben
Áhrifavaldurinn Rósa Kristín var sömuleiðis í Kaupmannahöfn sem hún segir sinn uppáhalds stað.