Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður, textasmiður og íslenskufræðingur furðar sig á límmiðum sem grunnskólabörn hafa fengið afhenta frá lögreglunni að undanförnu og segir þá ágætt dæmi um metnaðarleysi þegar kemur að hönnun og prófarkalestri.Bragi birtir mynd af límmiðanum á Facebook en á honum má sjá teiknaðar myndir af tveimur lögregluþjónum ásamt bangsa í lögreglubúningi. Athygli vekur að á vestum beggja lögregluþjónanna stendur „LÓGREGLAN“ í stað „LÖGREGLAN“.
Braga Valdimari blöskrar: Þetta fá grunnskólabörn í hendurnar – „Smekkleysið hefur sigrað“