Rauða blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum bláu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að telja 94% atkvæða í þingkosningunum sem fram fóru í Svíþjóð í gær.
Utankjörfundaratkvæði og atkvæði erlendis frá verða talin á miðvikudaginn og gætu niðurstöður þeirrar talningar haft áhrif á lokaniðurstöður kosninganna. Búist er við að endanleg úrslit liggi fyrir um næstu helgi.
Magdalena Anderson, leiðtogi sósíaldemókrata, sagði í ræðu í nótt að enn væri beðið eftir lokaniðurstöðum. Hvert atkvæði skipti máli en eitt væri ljóst og það væri að sósíal demókratar væru tilbúnir að axla ábyrgð á niðurstöðunni.
Forsætisráðherrann Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterne sem leiðir bláu blokkina í ríkisstjórn, sagði í nótt að það væru uppi mörg sjónarmið hjá rauðu blokkinni sem fari alls ekki saman og tíminn eigi eftir að leiða í ljós hvort þeim takist að mynda ríkisstjórn.
Kristersson sagði að jafnvel þótt niðurstaða kvöldsins standi – mun hann kanna hvort unnt sé að mynda starfhæfa ríkisstjórn innan þessa þingmeirihluta sem ekki er sósíalískur; stjórn sem er fær um að afla stuðnings við þá efnahagsstefnu sem kjósendur hafi lýst stuðningi við.
Svo virðist sem kjörsókn sé að dragast saman í Svíþjóð, í það minnsta samanborið við síðustu kosningar samkvæmt sænska ríkisútvarpinu. Klukkan hálf tvö í nótt að staðartíma bentu bráðabirgðatölur til þess að kjörsókn hafi verið 80,4 prósent nú. Kjörsókn árið 2022 var 84% og 87% árið 2018.