Donald Trump forseti Bandaríkjanna lauk tveggja daga heimsókn til Írlands í dag. Heimsókninni var mótmælt víða.
Trump fékk móttökur eins og þjóðhöfðingja sæmir þegar hann hitti Micheál Martin forsætisráðherra Írlands í móttökuhúsi embættisins í Dublin. Bandaríkjamenn hafa viðhaldið hlutleysi í málefnum Írlands og Norður-Írlands. Trump setti það ekki fyrir sig og sagði blaðamönnum að Írland og Norður-Írland ættu að sameinast.
Ummælin komu mörgum í opna skjöldu.
Breska ríkisstjórnin sendi strax þau skilaboð frá sér að samkomulagið frá 1998, sem er kennt við föstudaginn langa, verði virt. Það kveður á um að þjóðaratkvæðagreiðsla um sameiningu verði aðeins haldin með stuðningi Íra og ef Bretar telja meirihluta fyrir því.