Þingflokkur Miðflokksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að herða skilyrði sem innflytjendur þurfa að uppfylla til að fá íslenskan ríkisborgararétt. Fyrir einstaka staðhæfingu í greinargerð með tillögunni um nauðsyn fyrir þessum breytingum eru þó færð lítil sem engin rök og í greinargerðinni er fjallað um breytingar sem sagt er nauðsynlegt að hrinda í framkvæmd en koma þó ekkert fyrir í sjálfri tillögunni.Snorri Másson varaformaður flokksins er fyrsti flutningsmaður tillögunnar en aðrir þingmenn Miðflokksins eru meðflutningsmenn.
Vilja að það verði erfiðara að verða Íslendingur