Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um hópslagsmál í bílakjallara í gær eða nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar.
Flestir voru farnir þegar lögregla kom á vettvang og þeir sem eftir voru vildu ekki tjá sig. Ekki kemur fram hvar meint hópslagsmál fóru fram en útkallið mun hafa verið í umdæmi lögreglunnar í Austurbæ, Vesturbæ, Miðborg eða á Seltjarnarnesi.
Lögregla fór einnig í útkall í sama umdæmi þar sem grunur er um heimilisofbeldi, líkamsárás og eignaspjöll.
Lögregla fékk tilkynningu um ónæði og háreysti í fjölbýli í Hafnarfirði eða Garðabæ. Þá var óvelkomnum vísað úr verslanamiðstöð í Kópavogi eða Breiðholti.