Stjórnvöld í Póllandi og Úkraínu fordæma árás sem Rússar gerðu á lest nærri landamærunum milli Póllands og Úkraínu í gærmorgun. Lestin var Úkraínumegin við landamærin og á leið frá Kyiv til Varsjár í Póllandi þegar rússneskum dróna var skotið á hana.
Pólska lestarfyrirtækið PKP segir að 206 farþegar hafi verið um borð. Engan sakaði. Annar rússneskur dróni sprakk á bensínstöð nærri einni af landamærastöðvunum.
Lestafyrirtæki í Úkraínu segir að fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, og nokkrir evrópskir embættismenn hafi verið í annarri lest fyrir diplómata á lestarstöðinni Yagodyn á landamærunum skömmu áður en árásin var gerð.
Breska ríkisútvarpið segir að sú lest hafi verið á undan áætlun vegna breytinga á ferðaáætlun sem rekja má til stöðugra ógna af rússneskum drónum.
Þá var fyrrum forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, David Petraeus, í annarri lest á landamæralestarstöðinni þegar árásin var gerð. Johnson og Petraeus voru á leið frá nýafstaðinni ráðstefnu um öryggismál í Kyiv, Yalta European Strategy (YES).
Fyrrum forsætisráðherra Svía, Carl Bildt og Jonathan Powell, öryggisráðgjafi Andy Burnhams, forsætisráðherra Bretlands, voru einnig á ráðstefnunni og ferðuðust með lestum þessa sömu leið. Bildt sagði við breska ríkisútvarpið að lestarfarþegum hefði verið ráðlagt að undirbúa sig fyrir að yfirgefa lestina en ekki kom til þess og lestin fékk að halda áfram. Lestin sem hann var í komst á leiðarenda í Dorohusk í Póllandi án vandræða.
Lest diplómatanna hugsanlegt skotmark
Rússar segja að árásin hafi verið á járnbrautarmannvirki í vesturhluta Úkraínu. Úkraínska ríkislestarfyrirtækið Ukrzaliznytsia segir það frekar líklegt að lestin sem flutti erlendu diplómatana hafi verið skotmark Rússa.
Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu sakar Rússa um að hafa viljandi gert árás á lestina.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, stýrði neyðarfundi í Varsjá eftir árásirnar og varaði við því að Rússar myndu herða árásir enn frekar á komandi vikum. Hann sagði ekki hægt að útiloka að stigmögnun átaka myndi einnig hafa áhrif í Póllandi.
Loftrými Úkraínu hefur verið lokað síðan innrás Rússa hófst í Úkraínu og því hafa lestarsamgöngur milli Póllands og Úkraínu orðið ein helsta leiðin til að ferðast til og frá Úkraínu.