Rauðgræna blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum blágulu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að telja 94% atkvæða í þingkosningunum sem fram fóru í Svíþjóð í gær.
Utankjörfundaratkvæði og atkvæði erlendis frá verða talin á miðvikudaginn og gætu niðurstöður þeirrar talningar haft áhrif á lokaniðurstöður kosninganna. Búist er við að endanleg úrslit liggi fyrir um næstu helgi.
Magdalena Anderson, leiðtogi sósíaldemókrata, sagði í ræðu í nótt að enn væri beðið eftir lokaniðurstöðum. Hvert atkvæði skipti máli en eitt væri ljóst og það væri að sósíaldemókratar væru tilbúnir að axla ábyrgð á niðurstöðunni.
Forsætisráðherrann Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterne sem leiðir blágulu blokkina í ríkisstjórn, sagði í nótt að það væru uppi mörg sjónarmið hjá rauðgrænu blokkinni sem fari alls ekki saman og tíminn eigi eftir að leiða í ljós hvort þeim takist að mynda ríkisstjórn.
Kristersson sagði að hann ætli að kanna hvort unnt sé að mynda starfhæfa ríkisstjórn innan þessa þingmeirihluta sem ekki er sósíalískur og hafa samband við aðra flokksleiðtoga til að kanna möguleika á samstarfi.
Svo virðist sem kjörsókn sé að dragast saman í Svíþjóð, í það minnsta samanborið við síðustu kosningar samkvæmt sænska ríkisútvarpinu. Klukkan hálf tvö í nótt að staðartíma bentu bráðabirgðatölur til þess að kjörsókn hafi verið 80,4 prósent nú. Kjörsókn árið 2022 var 84% og 87% árið 2018.