Menningarmálaráðherra Ísrael kallar ísraelska heimildamyndaleikstjóra landráðamenn og segir að það eigi að svipta þá ríkisborgararétti.
Leikstjórarnir Yuval Abraham og Rachel Szor fengu á föstudag sérstök verðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir heimildamynd sína NAZA.
Myndin byggir á viðtölum við uppljóstrara innan ísraelska hersins og leyniþjónustunnar og greinir frá því hvernig gervigreind hefur verið nýtt til árása á óbreytta borgara á Gazasvæðinu. Myndin fékk mikið lof gagnrýnenda og langt uppklapp að lokinni frumsýningu á hátíðinni.
Miki Zohar, menningarmálaráðherra Ísraels, sakar leikstjórana um að hafa skaðað orðspor heimalands síns til að fá viðurkenningu frá gyðingahöturum um allan heim. Hann sagði í færslu á X að hann ætlaði að grípa strax til aðgerða til að svipta þau ríkisborgararétti sínum fyrir landráð þeirra gegn ríkinu.