Landsliðshetja að verða faðir

Viktor Gísli og Jenný á góðri stundu
Mynd: Jenný Fjóla Ólafsdóttir/Instagram
Handknattleiksmaðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson og kærasta hans, Jenný Fjóla Ólafsdóttir, eiga von á barni.
Parið greindi frá gleðitíðindunum á Instagram þar sem þau birtu mynd og tilkynntu að von væri á barninu í mars á næsta ári.
„Bíðum spennt eftir Mars ‘27,“ skrifuðu þau við myndina.
Viktor Gísli og Jenný Fjóla hafa verið saman í átta ár og því um stór tímamót að ræða hjá parinu.
Viktor Gísli er einn af landsliðsmönnum Íslands í handknattleik og hefur undanfarin ár verið áberandi á handboltavellinum, bæði með íslenska landsliðinu og á erlendri grundu.