Kona leitar ráða til sambands- og kynlífsráðgjafa The Sun, Dear Deidre. Hún ákvað að koma kærasta sínum á óvart og halda fyrir hann fertugsafmæli. Hún bauð fjölskyldu hans og vinum og var veislan vel heppnuð, þar til hún komst að sárum svikum.Konan, 38 ára, fer stuttlega yfir söguna. „Við höfum verið saman í sex ár og ég hélt að við værum hamingjusöm. Ég var að plana veisluna í nokkrar vikur með stjúpsyni mínum [...] Við héldum þetta á uppáhalds barnum hans, buðum fjölskyldu hans og gömlum vinum sem hann hefur ekki séð í mörg ár.“
Óvænt fertugsafmæli kom upp sár svik - „Hvernig gat hann gert mér þetta?“