Bandarísk kona á sjötugsaldri hefur verið ákærð fyrir morð á eiginmanni sínum. Málið er sérstakt að því leyti að konan er sökuð um að hafa notað fánastöng til verksins.Tímaritið People greinir frá þessu.Hin 65 ára Vicky Kim frá Palm Desert í Kaliforníufylki hefur verið handtekin og ákærð fyrir morð á eiginmanni sínum. Á hún að hafa notað fánastöng til verksins.Lögreglan var kölluð út að heimili hjónanna föstudagsmorguninn 4. september eins og segir í fréttatilkynningu lögreglunnar í Riverside sýslu, austan við Los Angeles borg.
Sterkefnuð kona grunuð um að myrða eiginmann sinn með fánastöng