Jón Birgir Jónsson hefur verið ráðinn sem forstjóri Kviku banka hf. Hann tekur til starfa 1. desember og tekur þá við af Ármanni Þorvaldssyni sem tilkynnti fyrr á árinu að hann hygðist láta af störfum sem forstjóri bankans.
Í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla segir að Jón Birgir búi yfir yfirgripsmikilli reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hann hefur starfað stærstan hluta starfsferils síns erlendis, hjá Neuberger Berman í London og J.P. Morgan Asset Management í New York og London sem eru tvö stærstu eignastýringarfyrirtæki heims.
Jón Birgir lauk grunnnámi í stærðfræði við Háskóla Íslands og framhaldsnámi í fjármálaverkfræði við New York University. Hann hefur starfað lengi erlendis en haldið tengslum við íslenskt atvinnulíf, meðal annars sem stjórnarmaður í Bresk-íslenska viðskiptaráðinu.
„Ég er fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Þetta er virkilega spennandi verkefni og bankinn er einstaklega vel í stakk búinn til áframhaldandi sóknar, með góða innviði, sterkan efnahagsreikning og framúrskarandi starfsfólk. Markmið okkar er og verður áfram að veita viðskiptavinum okkar öfluga fjármálaþjónustu,“ segir Jón Birgir.
Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Kviku banka, segir ánægjulegt að fá Jón Birgi í öflugt lið Kviku. „Umfangsmikil reynsla hans af fjármálamörkuðum og sterk alþjóðleg tengsl munu nýtast Kviku vel í áframhaldandi þróun bankans,“ segir Sigurður í tilkynningunni frá Kviku banka.