Stjórn Kviku banka hefur ráðið Jón Birgi Jónsson sem forstjóra bankans. Jón Birgir mun hefja störf þann 1. desember næstkomandi og tekur þá við af Ármanni Þorvaldssyni, sem tilkynnti fyrr á árinu að hann hygðist láta af störfum.Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.Þar kemur fram að Jón Birgir búi yfir yfirgripsmikilli reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hafi starfað stærstan hluta starfsferils síns erlendis, í London og New York, hjá tveimur af stærstu eignastýringarfyrirtækjum heims.
Jón Birgir Jónsson ráðinn forstjóri Kviku banka