Gistiaðstaðan sem er ætluð íþróttamönnum á Asíuleikunum sætir mikilli gagnrýni forsvarsmanna sumra þeirra ríkja sem taka þátt. Keppni hefst í þessari viku og eiga keppendur að gista á hótelum, í skemmtiferðaskipum og í bráðabirgðaaðstöðu í færanlegum gámum.
Þetta vekur hörð viðbrögð.
Jung Jae-yong, varaformaður Körfuknattleikssambands Suður-Kóreu, sagði að aðstaðan sem leikmönnum hans væri ætluð væri ekki boðleg. „Miðað við mína reynslu er þetta það versta sem nokkru sinni hefur verið boðið upp á.“
Hann sagði að íþróttamenn sem væru meira en tveggja metra háir gætu ekki teygt úr sér í rúmum sínum. Það getur því verið þröngt um körfuboltakappa sem oft eru með hávaxnari mönnum.
Einn leikmannanna birti myndband af lekum vaski og gólfi á floti með orðunum: „Vinsamlegast hjálpið okkur.“
Yfirmenn indverskra íþróttasambanda brugðu á það ráð að búa til eftirlíkingu af svefnaðstöðunni. Þannig gáfu þeir sínum keppendum færi á því að venjast því að sofa við þessar aðstæður áður en þeir mættu til keppni.
Einnig hefur verið gagnrýnt að aðeins hafi verið gert ráð fyrir 15.000 keppendum en að þeir verði 17.000 talsins. Því sé ekki næg gistiaðstaða fyrir alla.
Milli fjögur og fimm þúsund keppendur eiga að sofa í ítölsku skemmtiferðaskipti, Costa Serena, sem á að koma til hafnar í Nagoya á morgun.