Vasaþjófar við Gullfoss stálu 400 þúsund krónum af Yemin

Kanadíski ferðamaðurinn Yemin Gu segist hafa orðið fyrir vasaþjófnaði við Gullfoss á dögunum en Mannlíf greindi frá málinu í fyrradag.
Gu segir við Mannlíf að tveir einstaklingar hafi fylgt sér um svæðið eftir að þeir hafi fyrst reynt að komast yfir myndavélatösku hennar. Þegar þeir hafi komist að því að taskan væri tóm hafi þeir haldið áfram að elta hana. Hún telur að veski hennar hafi verið stolið úr bakpoka hennar síðar.
Að sögn Gu voru um 2.000 kanadískir dollarar í reiðufé í veskinu auk þriggja greiðslukorta. Hún segir að síðar hafi eitt kortanna verið notað fyrir færslu upp á um 1.700 bandaríkjadali hjá fyrirtæki í Riyadh í Sádi-Arabíu. Hinum kortunum var lokað áður en hægt var að misnota þau.
Gu segir að vegabréf hennar hafi hins vegar verið skilið eftir í töskunni, sem hafi gert henni kleift að halda heim til Toronto samkvæmt áætlun.
Hún kveðst hafa leitað að veskinu við Gullfoss, skráð upplýsingar sínar hjá verslun á svæðinu og síðar tilkynnt málið til lögreglu í Reykjavík. Þá hafi hún afhent lögreglu myndskeið sem hún telur sýna þjófnaðinn. Hún segist enn ekki hafa fengið upplýsingar um framvindu málsins.
Gu segist hafa sent myndbandið einnig til ferðamálayfirvalda hér á landi. Hún lýsir vonbrigðum með atvikið og segir það hafa haft veruleg áhrif á ferð sína um Ísland.