Enskir stuðningsmenn hafa lagt undir sig miðborg Boston fyrir leik Englands og Gana á HM í kvöld. Veisluhöldin hafa farið úr böndunum á sumum stöðum og heimamenn saka gestina um hroka, slæma framkomu og „engan klassa“.
Meira en 14 þúsund stuðningsmenn enska landsliðsins eru sagðir hafa komið til Boston fyrir annan leik liðsins á heimsmeistaramótinu.
England hóf keppni með 4–2 sigri á Króatíu og bjartsýnin er mikil fyrir leikinn gegn Gana, sem hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður sýndur í beinni á RÚV 2.
Stemningin í Boston hefur þó ekki alls staðar verið hátíðleg. Daily Mail greinir frá því að hávaðasamir stuðningsmenn hafi fyllt bari og götur borgarinnar og að sumir heimamenn séu þegar komnir með nóg.
Bar lokaði vegna óláta
Um 200 enskir stuðningsmenn fylltu White Bull Tavern í miðborg Boston á mánudagskvöld.
Að sögn starfsfólks fóru gestir að standa uppi á húsgögnum og rekast í ljósakrónur. Á endanum var ákveðið að loka staðnum fyrr en venjulega.
Starfsmaður lýsti kvöldinu sem stjórnlausu og óttaðist að ástandið yrði enn verra eftir leikinn gegn Gana.
Breskir lögreglumenn sem sérhæfa sig í fótboltaóeirðum hafa unnið með lögreglunni í Boston. Um tuttugu lögreglumenn sáust standa fyrir utan bari við Union Street þegar stórir hópar stuðningsmanna streymdu út á götuna.
„Gerið það sama og árið 1776“
Íbúar Boston hafa látið skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlum.
Einn þeirra sagðist hafa hitt sinn fyrsta hóp enskra stuðningsmanna og lýsti fundinum sem einni verstu upplifun sem hann hefði orðið fyrir.
„Vinsamlegast gerið það sama og árið 1776 og farið héðan.“
Þar var vísað til sjálfstæðisbaráttu Bandaríkjamanna gegn Bretum.
Annar heimamaður brást við myndbandi þar sem stuðningsmenn Englands sungu niðrandi söngva um Skotland.
„Hrokinn, yfirlætið og enginn klassi. Skotarnir eru algjör andstæða.“
Þriðji sagði Englendingana ekki vera á réttri leið til að vinna hug og hjörtu íbúa borgarinnar.
Skotarnir slógu í gegn
Samanburðurinn við skoska stuðningsmannahópinn, Tartan Army, hefur ekki reynst Englendingunum hagstæður.
Skotar voru í Boston vegna fyrstu leikja sinna á mótinu og urðu gríðarlega vinsælir meðal heimamanna.
Fjöldi kvenna í borginni birti myndskeið á TikTok þar sem þær dönsuðu og skemmtu sér með skoskum stuðningsmönnum í skotapilsum.
Ein kona skipulagði sérstakt stefnumótakvöld þar sem hundrað einhleypar bandarískar konur áttu að bíða eftir skoskum körlum.
Önnur birti myndskeið af Skota sem bar konu á bakinu um götur Boston með textanum:
„Ef hann gerir það ekki, þá gerir skoskur maður það.“
Skotarnir voru einnig sagðir kurteisir og vingjarnlegir. Ein kona hvatti einhleypar vinkonur sínar til að fara á barina og hitta þá.
„Þeir virðast mjög indælir. Þeir vildu klappa hundinum mínum.“
Bjórinn flæddi
Skosku stuðningsmennirnir skiluðu jafnframt miklum tekjum til kráa og veitingastaða.
The Greatest Bar átti sína bestu viðskiptaviku í 22 ár og tveir barir í borginni seldu samanlagt meira en 300 kúta af skoska bjórnum Tennent’s.
Englendingarnir hafa einnig fyllt staðina. Hundruð komu saman á The Greatest Bar í grenjandi rigningu, sungu, dönsuðu og léku sér með uppblásin leikföng.
David Bentley, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, leiddi stuðningsmennina í fjöldasöng á laginu Wonderwall.
Rándýr ferð
Ferðin hefur þó kostað sitt.
Lestarmiðar sem venjulega kosta 20 Bandaríkjadali eru sagðir hafa hækkað í 80 dali. Einn stuðningsmaður greiddi 180 dali fyrir bílastæði nærri Gillette-leikvanginum.
Aðrir hafa greitt hundruð dala fyrir miða á leikinn.
Stuðningsmennirnir segjast þó ekki sjá eftir neinu. Fyrir marga sé þetta einstakt tækifæri til að fylgjast með Englandi á heimsmeistaramóti.
Leikur Englands og Gana hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður sýndur beint á RÚV 2.