Andstæðingar Evrópusambandsaðildar Íslands, þeir sem vilja ekki leyfa þjóðinni að sjá fullbúinn aðildarsamning, hafa löngum haldið því fram að hagur Breta hafi blómstrað frá því þeir gengu út úr ESB fyrir rúmum fimm árum. Hagvöxtur blómstri, hamingja landsmanna sé mælanlega meiri en fyrr, efnahagur Bretlands sé betri en nokkru sinni, allt sé miklu betra utan ESB.Orðið á götunni er að þessi söngur nei-sinna sé argasta öfugmælavísa, þessu sé þveröfugt farið. Gögn styðja þetta.
Orðið á götunni: Brexit skaðlegra en óttast var – stórskáldið dregur strik í sandinn