Ekki er hægt að sjá staðsetningu hvalveiðiskipanna Hvals 8 og Hvals 9 eins og flestra skipa því slökkt er á sjálfvirku auðkenniskerfi þeirra. Í undantekningartilfellum má grípa til þessa ráðs ef skipstjóri skips telur það nauðsynlegt í þágu öryggis eða verndar þess.
Samkvæmt svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn fréttastofu höfðu forsvarsmenn Hvals hf. samband við Gæsluna og tjáðu henni að skipin myndu nýta sér umrædda heimild. Þau senda þess í stað stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skeyti í gegnum gervihnött á klukkustundar fresti um staðsetningu sína.
Lög kveða á um að öll íslensk fiskiskip skuli vera búin sjálfvirku auðkenniskerfi sem á alltaf að vera í gangi nema skipstjóri telji annað nauðsynlegt. Það er skipstjóra að taka ákvörðun um hvort skip nýti undanþáguna og er hún ekki háð leyfi frá Landhelgisgæslunni.
Kristján kallaði til lögreglu í nótt
Fyrstu langreyðum vertíðarinnar var landað í hvalstöðinni í Hvalfirði í nótt. Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., hafði samband við lögregluna á Vesturlandi og óskaði eftir að hún væri í nágrenninu ef eitthvað skyldi koma upp.
Þetta staðfestir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi.
Lögregla kom á staðinn um klukkan fjögur en Ásmundur segir að allt hafi verið mjög friðsamlegt við hvalstöðina. „Þetta fór vel fram,“ segir hann.
Honum telst til að í kringum sjö hafi verið á staðnum að taka myndir en vill ekki álykta um í hvaða erindagjörðum fólkið var.