Alex er af frönsku bergi brotinn og sagði af máli sínu í þætti hlaðvarpsins Bjórkastið. Hann átti í forræðisdeilu við íslenska barnsmóður sína sem sendi barn þeirra í transmeðferð á Landspítalanum.
Alex kom til Íslands fyrir 25 árum. Hann stundaði sjómennsku og flutti sig svo yfir í ferðamennskuna. Svo söðlaði hann um og starfaði á veitingastöðum og hótelum. Hann varð faðir fyrir rúmum tíu árum og segir að skilnaðurinn hafi verið erfiðari en hann var þegar sonur hans var fimm ára gamall.
Alex segir að hlutirnir hafi orðið torkennilegir eftir sjö ára aldur barn síns. Barnið hafi haft gaman af því að klæðast búningum og vildi vera í prinsessubúningi. Svo fékk hann tölvupóst frá barnsmóður sinni þar sem sagði að hann vildi koma úr skápnum. Alex segist ekki hafa látið þetta trufla sig neitt enda hafi hann ekkert á móti samkynhneigðum.
Í Facebook-færslu segir hann að tíu ára gamall barn hans hafi verið sendt í transmeðferð á Landspítalanum. Hann hafði ekkert um það að segja. Alex fór með málið í dóm og Landsréttur hafi nú úrskurðað að stöðva beri meðferðina. Þetta er fyrsta mál sinnar tegundar á Íslandi, segir í Facebook-færslu Alex, málið var útkjáð við lokuð réttarhöld og hann sé eina foreldrið sem er að berjast og borga.
Alex nefnir í færslu sinni að hann skorti tvær milljónir króna vegna lögfræðikostnaðar og sérfræðiráðgjafar og hann hvetur fólk til að styðja sig og barn sitt vegna þessarar baráttu sinnar sem sé einstök í íslenskri réttarfarssögu.
Athugasemd 16:55
Eftir því sem Vísir kemst næst hefur Landsréttur ekki úrskurðað í málinu, rétturinn hefur kallað eftir viðbótarmati frá sálfræðingi við forsjármálið. Málið er nú í bið og verður líklega ekki tekið fyrir fyrr en í vetur komandi. Héraðsdómsmálið, sem snerist um forsjá, í því var dæmt í byrjun desember á síðasta ári. Þar tapaði Alex forsjá en áfrýjaði svo málinu til Landsréttar. Mjög strangar reglur gilda um transteymi LSH, Bugl, og þar byrjar enginn í meðferð fyrr en kynþroski er hafinn. Tíu ára transbörn fara ekki almennt á lyf, heldur í sálfræðimeðferð, þau komast ekki inn í teymið.