Bændasamtök Íslands hafa ákveðið að boða til aukabúnaðarþings vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald viðræðna við ESB. Formaður samtakanna segir að verið sé að keyra risastórt pólitískt mál í gegnum samfélagið um hásumar og ráðamenn þjóðarinnar hafi ekki útskýrt af hverju.
Á Búnaðarþinginu í mars var skipuð milliþinganefnd til að greina áhrif aðildar Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað og stöðu bænda. Niðurstöður þeirrar nefndar verða kynntar í sumar og síðan ræddar á aukabúnaðarþingi 14. ágúst og afstaða samtakanna gerð opinber.
Risastórt pólitískt mál
Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtaka Íslands segir að samtökin séu ekki að álykta gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. „Þetta er bara risastórt pólitískt mál sem er verið að keyra hérna á samfélagið okkar á Íslandi og það sem snýr að landbúnaðinum þá eru bændur náttúrulega í mínum huga langbest til þess fallnir að fjalla um landbúnaðinn,“ segir Trausti Hjálmarsson.
Aðlögun fari strax af stað
Trausti fullyrði að ef þjóðin segi já í ágúst, þá hefjist ekkert annað en aðlögunarferli að Evrópusambandinu og þess vegna verði Bændasamtökin að taka afstöðu til þess hvort hagsmunum landbúnaðarins sé betur borgið innan ESB eða ekki. Hann segir að fyrst og fremst sé verið að halda á lofti mögulegum afleiðingum fyrir íslenskan landbúnað af aðlögunarferli. „Það verður dýrt það mun setja fjárfestingarvilja íslenskra bænda alveg á frost framtíðarhorfur eða svona að horfa inní framtíðina og gera framtíðarplön verður mjög erfitt meðan þessi óvissa öll er uppi, “ segir Trausti.
Sjá ekki gullin tækifæri og græn grös
Þannig telur Trausti að bændur séu almennt á móti inngöngu í ESB og hann sjái ekki sóknarfærin eins og staðan sé núna. Bænadasamtökin sjái ekki þessi gullnu tækifæri og grænu grös hinum megin hafsins. „Mér finnst ráðamenn þjóðarinnar skulda þjóðinni það að standa í lappirnar og skýra þá af hverju við erum í þessari vegferð þeir hafa ekki gert það nægilega vel hingað til. Er mörgum spurningum ósvarað? Það finnst mér já,“ segir Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna.