Rússar hafa misst um 1,4 milljónir hermanna í innrásarstríði sínu í Úkraínu, sem hafa annaðhvort fallið eða særst. þar af 1.390 síðasta sólarhringinn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá hershöfðingjaráði úkraínska hersins.
Þar segir að frá 24. febrúar 2022 hafi um 1.394.530 hermenn fallið eða særst. Auk þess hafi Rússar tapað yfir 12 þúsund skriðdrekum, tæplega 25 þúsund brynvörðum bifreiðum, yfir 110 þúsund ökutækjum og eldsneytisgeymum, tæplega 45 þúsund stórskotaliðsbúnaði, tæplega tvö þúsund fjölþættum eldflaugakerfum og tæplega 1500 loftvarnarkerfum.
Herforingjaráðið gaf ekki upp hversu mikið tjón hafi orðið hjá úkraínska hernum og segir það vera vegna hernaðarleyndar.
Hugveitan Center for Strategic and International Studies tekur undir fullyrðingar Úkraínuhers um að mannfall Rússa sé miklu mun meira en mannfall Úkraínumanna og áætlar að hlutfallið sé 2,5:1 eða 2:1.
Skýrsla hugveitunnar síðan í janúar áætlaði að á bilinu 500 til 600 þúsund hermenn hefðu fallið eða særst frá febrúar 2022 til desember 2025, þar af á bilinu 100 til 140 þúsund sem hafi fallið í bardögum.
Telja nærri 500 þúsund rússneska hermenn hafa fallið
Stærsta leyniþjónusta Bretlands, GCHQ, birti skýrslu í lok maí þar sem hún áætlaði að nærri 500 þúsund rússneskir hermenn hefðu fallið frá allasherjarinnrásinni 2022.
Stjórnvöld í Úkraínu og Rússlandi hafa reglulega birt mat á því hversu margir hafi fallið og særst í herbúðum andstæðinganna en hafa ekki viljað birta upplýsingar um eigin heri. Í febrúar greindi Volodymyr Zelensky Úkraínnuforseti frá því að 55 þúsund hermenn hefðu fallið eða særst síðan allsherjarinnrásin hófst fyrir fjórum árum.
BBC í Rússlandi hefur í samstarfi við sjálfstæða fjölmiðilinn Mediazona og hóp sjálfboðaliða haldið utan um tölur yfir fallna og særða hermenn í rússneska hernum síðan í febrúar 2022. Þau halda utan um lista yfir fallna einstaklinga með því að nota opinberar skýrslur, dagblöð, samfélagsmiðla og ný minnismerki og grafir.
Hingað til hefur þeim tekist að staðfesta nöfn tæplega 224 þúsund rússneskra hermanna sem hafa fallið í Úkraínu. Þó telja þau að raunverulegur fjöldi sé miklu hærri.