Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri og sonur konunnar, skrifaði færslu um málið á Facebook um helgina og kallaði eftir viðbrögðum frá borgaryfirvöldum. Þau hafa nú brugðist við og mættu vinnuvélar á staðinn í morgun.
„Stóra fréttin í dag er að vinnan er byrjuð við að laga frægustu gangstéttina í Grafarvogi. Það er ánægjulegt að sjá sterkt viðbragð og stjórnun þegar svona skellur kemur óvænt. Takk, Sjálfstæðismenn,“ segir Hermann í færslu á Facebook-síðu sinni í dag.
Í frétt Vísis um málið um helgina kom fram að mörg slys hafi orðið á gangstéttinni á hlaupahjólum, barnavögnum og núna hjólastólum.
„Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð. Nú skora ég á félaga mína í Sjálfstæðisflokknum að forða því strax að fleiri svona slys verði á þessum stað. Ábendingum íbúa hefur aldrei verið sinnt,“ sagði Hermann um helgina en starfsmaður Eirar var á leið með móður hans í klippingu þegar slysið varð.
Hermann sagði nágranna sem urðu vitni að slysinu hafa drifið sig á staðinn þegar slysið varð til að hlúa að móður hans. „Og koma henni til hjálpar og þá koma fram þessar upplýsingar að þarna hafi margoft orðið slys, fólk með barnavagna, á hlaupahjólum og á reiðhjólum. Þetta er ekkert grín,“ sagði hann í samtali við Vísi um helgina.