Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum - Vísir

Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum - Vísir

Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum - Vísir

Málið er nefnt Operation Raccoon í kynningarmyndbandi ísraelska tæknifyrirtækisins Cellebrite, þar sem starfsmenn embættis héraðssaksóknara lýsa því hvernig stafræn sönnunargögn og greiningartækni fyrirtækisins voru notuð við rannsóknina.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir í samtali við Vísi að málið hafa áður ratað í fjölmiðla. Það hafi hafist árið 2018 og snúist um fjölda ungmenna sem voru fengin til að fara í banka og skipta íslenskum krónum yfir í evrur.

Að sögn Ólafs komu rúmlega 50 aðilar við sögu í þeim hluta málsins og höfðu þeir réttarstöðu sakbornings við rannsóknina. Um hafi að mestu verið að ræða Íslendinga.

Fjárhæðirnar sem um ræðir eru miklar. Ólafur segir að málið snúist um um 600 til 700 milljónir króna.

Málið er nú hjá saksóknara innan embættis héraðssaksóknara og bíður ákvörðunar um hvort ákæra verði gefin út.

Ísland notað sem dæmi í kynningarefni

Cellebrite er ísraelskt tæknifyrirtæki sem selur lögreglu, rannsóknaryfirvöldum, leyniþjónustum, herjum og fyrirtækjum hugbúnað og búnað til að ná í, flokka og greina stafræn gögn úr símum, tölvum og öðrum tækjum.

Ólafur Þór segir hvorki embættið né starfsmenn þess hafa fengið greitt fyrir þátttöku í myndbandi Cellebrite. Vísir/Vilhelm

Fyrirtækið segir lausnir sínar notaðar í 150 löndum. Á vefsíðu þess kemur einnig fram að tæknin hafi verið keypt af 6.900 opinberum öryggisstofnunum og fyrirtækjum í yfir 100 löndum. Þá segir fyrirtækið að það sé með meira en 60 þúsund leyfi í notkun og að viðskiptavinir þess séu meðal annars lögreglu-, her-, leyniþjónustu- og fyrirtækjaaðilar.

Í myndbandinu er reynsla íslenskra yfirvalda notuð sem dæmi um hvernig hugbúnaður Cellebrite geti nýst við rannsóknir á fjármálabrotum og skipulagðri brotastarfsemi.

Frá bankahruni til stafrænnar brotastarfsemi

Myndbandið hefst á því að Ísland er kynnt sem lítið en þróað evrópskt samfélag. Síðan er horft aftur til ársins 2008, þegar íslensku bankarnir þrír féllu á einni viku og áhrif hrunsins teygðu sig langt út fyrir landsteinana.

Í framhaldinu er rakin stofnun embættis sérstaks saksóknara, sem var sett á fót eftir bankahrunið til að rannsaka mál tengd hruninu. Í myndbandinu er því lýst hvernig embættið byrjaði sem lítið teymi sem vissi ekki fyrir fram hversu mikið verkefnið yrði.

Forsaga embættis héraðssaksóknara er rakin til bankahrunsins árið 2008. Vilhelm

Hulda Sigríður Guðmundsdóttir, yfirlögreglufulltrúi hjá héraðssaksóknara, segir í myndbandinu að hún hafi fyrst starfað sem almennur lögreglumaður í tvö ár. Síðar hafi hann unnið í sjö ár við rannsóknir á atburðum í aðdraganda fjármálahrunsins, en síðustu árin hafi áherslan færst meira yfir á peningaþvætti og alvarlega skipulagða brotastarfsemi.

Hún segir alvarlega skipulagða brotastarfsemi í grunninn nær alltaf snúast um fjármuni. Enginn stundi slíka starfsemi án ávinnings. Því séu slík mál, að hennar mati, í eðli sínu fjármálabrot.

Gögnin ekki lengur bara í tölvupósti

Í myndbandinu er lögð áhersla á hvernig rannsóknarumhverfið hefur breyst. Í gamla daga hafi gögnin fyrst og fremst verið í tölvupósti. Nú séu þau dreifð um síma, tölvur, samskiptaforrit, myndir, skjöl og ólík forrit.

Ólafur Þór Hauksson segir í myndbandinu að eldri rannsóknartæki hafi verið frumstæðari og ekki ráðið nægilega vel við gagnamagnið sem embættið þurfti að vinna úr eftir bankahrunið. Vandinn í dag sé ekki aðeins að safna gögnum, heldur að sjá samhengi milli gagna úr mörgum tækjum og forritum.

Í myndbandinu er því lýst að gögn séu sett inn í kerfi Cellebrite, meðal annars Pathfinder, þar sem hægt sé að greina tengsl milli tækja, samskipta, mynda og annarra gagna. Þar komi gervigreind og myndgreining að gagni, til dæmis þegar leita þurfi að tiltekinni tegund mynda í miklu gagnamagni.

Tekin eru dæmi um kvittanir. Í Operation Raccoon hafi rannsakendur fundið mynd af kvittun og síðan getað spurt kerfið hvort sambærilegar myndir væru til í öðrum tækjum. Þannig hafi verið hægt að finna fleiri kvittanir og tengja saman gögn sem annars hefðu verið dreifð og torlesin.

Hann segir hægt að gera slíka vinnu handvirkt en það gæti tekið ár. Með hugbúnaðinum sé hægt að vinna á nokkrum dögum það sem annars hefði tekið margfalt lengri tíma.

Grunsamleg gjaldeyrisskipti leiddu að stærra máli

Í myndbandinu er Operation Raccoon lýst sem máli sem hófst eftir að grunsamleg gjaldeyrisskipti vöktu athygli. Fólk fór í banka og skipti íslenskum krónum yfir í evrur. Rannsakendur spurðu sig hvaðan peningarnir kæmu og hvert þeir færu.

Í fyrstu komu ýmsar skýringar til greina. Málið gæti tengst skattaundanskotum, ólöglegri atvinnustarfsemi, fíkniefnum eða vændi. Síðan bárust gögn frá Europol og rannsóknin færðist í átt að grun um fíkniefnainnflutning.

Hulda Sigríður lýsir því að í slíkum málum sé mikilvægt að bregðast hratt við. Peningaslóðin geti verið eftir, en fíkniefnin sjálf hverfi fljótt þegar þau eru seld. Þess vegna skipti máli að ná utan um gögnin áður en tengslin milli manna glatast eða verða erfiðari í sönnun.

Í rannsókninni voru haldlögð fjölmörg símtæki og tölvur. Í myndbandinu er talað um að alls hafi verið lagt hald á um 70 til 80 tæki, 17 manns hafi verið handteknir og 17 teknir í skýrslu.

Rannsóknin hafi byggst á gögnum sem fundust í farsímum og tölvum. Þau gögn hafi meðal annars leitt til játninga.

Ekki aðeins þau sem fóru í bankana

Ólafur Þór segir að rannsóknin hafi ekki aðeins beinst að þeim sem fóru sjálfir í bankana til að skipta peningum.

Það sem hafi tekist að upplýsa í málinu hafi verið aðild fleiri að brotunum, ekki aðeins þeirra sem framkvæmdu gjaldeyrisskiptin. Rannsóknin hafi því snúist um að komast ofar í stigveldið og upplýsa hverjir stóðu að baki.

Í myndbandinu er þetta sett fram með þeim hætti að rannsakendur hafi færst hærra og hærra upp í skipulaginu. Þar er talað um að þeir hafi að lokum fundið mann sem þeir kölluðu „kingpin“, eða höfuðpaur.

Ólafur segir málið hafa verið rannsakað sem peningaþvættismál. Það endurspegli stærri þróun í stórum fíkniefna- og peningaþvættismálum hér á landi, þar sem ekki dugi að horfa aðeins á fíkniefnin sjálf, heldur þurfi einnig að rekja peningaslóðina.

Sem dæmi nefnir hann trjádrumbamálið frá árinu 2022, þar sem tæplega 100 kíló af kókaíni voru falin í sjö trjádrumbum í vörusendingu frá Brasilíu. Málið var á sínum tíma sagt stærsta kókaínmál Íslandssögunnar.

Operation Raccoon sé hluti af sömu stærri mynd: þar skipti máli að rekja ekki aðeins handhafa peninganna, heldur einnig milliliði, tengslanet og þá sem kunni að hafa staðið að baki.

Engar greiðslur fyrir myndbandið

Ólafur segir embætti héraðssaksóknara hafa keypt hugbúnað frá Cellebrite um nokkurt skeið og notað hann töluvert við rannsóknir. Til séu fleiri kerfi af þessu tagi, en Cellebrite sé eitt þeirra kerfa sem embættið hafi notað.

Aðspurður hvers vegna embættið hafi tekið þátt í gerð myndbandsins segir Ólafur að það hafi verið gert án greiðslu og að um kynningarefni hafi verið að ræða. Hann hafi þó ekki áttað sig á því fyrir fram hversu umfangsmikið myndbandið yrði.

Persónulegur tónn í lokin

Myndbandið er ekki aðeins tæknileg lýsing á rannsóknartækjum. Það er líka sett upp sem frásögn um íslenskt samfélag, bankahrunið, þróun sakamálarannsókna og baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Undir lokin verður tónninn persónulegri. Hulda Sigríður segir að stundum hafi henni fundist hún vera að gefast upp. Þá rifjist þó upp fyrir henni hvers vegna hún vinni starfið.

Ólafur Þór segist í myndbandinu finna tilgang og skyldu gagnvart samfélaginu til að gera eins vel og hann geti og stuðla að öruggari og betri heimi.

Þannig er Operation Raccoon notað í myndbandinu sem dæmi um breytta tíma í sakamálarannsóknum. Þar eru símarnir, tölvurnar, kvittanirnar, myndirnar og stafrænu samskiptin ekki aukaatriði, heldur lykillinn að því að sjá heildarmyndina.

#evrum #krónur #operation #raccoon #urðu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262900993d/operation-raccoon-kronur-urdu-ad-evrum-og-slodin-leiddi-ad-hofudpaurum

📰 Aðrar fréttir

Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vest­manna­eyjum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vest­manna­eyjum - Vísir
Bjargdúfur eru friðaðar en bæjaryfirvöld fengu leyfi frá umhverfisráðuneytinu til fækkunar dúfnanna og leiðbeiningar frá Náttúruverndarstofnun um fram...
Nýjar vísbendingar um að Hitler hafi drepið manneskju með eigin höndum – „Líkið var ótvírætt þegar komið í íbúðina á þeim tímapunkti“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Nýjar vísbendingar um að Hitler hafi drepið manneskju með eigin höndum – „Líkið var ótvírætt þegar komið í íbúðina á þeim tímapunkti“
Adolf Hitler er gjarnan nefndur sem ein versta manneskja sögunnar og því til stuðnings nefnt iðnaðarmorð hans á milljónum gyðinga og annarra hópa sem ...
Dani sættir sig ekki við að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ætli ekkert að gera vegna „villandi“ merkinga á Swiss Miss
📅 25.09.2026 👁️ 2
Dani sættir sig ekki við að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ætli ekkert að gera vegna „villandi“ merkinga á Swiss Miss
Kæra hefur verið lögð fram til atvinnuvegaráðuneytisins vegna ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að aðhafast ekki frekar vegna kvörtunar y...
Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu
Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu Kvið­dóm­ur í Nýju-Mexí­kó komst að þeirri nið­ur­stöðu að Meta hefði gef­ið not­end­um v...
Bið barna eftir þjónustu hefur lengst: „Þúsundir bíða mánuðum eða árum saman“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Bið barna eftir þjónustu hefur lengst: „Þúsundir bíða mánuðum eða árum saman“
Umboðsmaður barna segir stöðuna á biðlistum barna víða hafa versnað. Þúsundir bíði mánuðum eða jafnvel árum saman eftir greiningu, meðferð og þjónustu...
Á­kærður fyrir gróf brot á barn­ungri stjúp­systur sinni - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Á­kærður fyrir gróf brot á barn­ungri stjúp­systur sinni - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru héraðssaksóknara, sem gefin var út 2. júlí síðastliðinn. Ákæran er í fjórum liðum og er maðurinn ákærður fyrir nauðgun og kyn...
Hækkun krónutölugjalda um áramót líklega minni en fjárlög kveða á um
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hækkun krónutölugjalda um áramót líklega minni en fjárlög kveða á um
Allar líkur eru á að hækkun krónutölugjalda um áramót verði minni en fjárlögin kveða á um. Seðlabankastjóri vill að það nái yfir allan opinbera geiran...
Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
Erla Talía Einarsdóttir var átján ára þegar hún keppti í Ungfrú Ísland árið 2025. Núna ári síðar hefur hún birt TikTok-myndband um reynslu sína af kep...
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
📅 25.09.2026 👁️ 3
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að upphrópanir gagnvart Flokki fólksins, Ingu Sæland og Ragnari Þór Ingólfssyni vegna brotthvarfs Guðmund...
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
Tígull greinir frá komu þessa sjaldgæfa gests. Eyjamiðillinn ræddi við Yann Kolbeinsson fuglafræðing sem sagði komum kúhegra til landsins hafa fjölgað...
Trump's plans for massive arch move ahead
📅 25.09.2026 👁️ 0
Trump's plans for massive arch move ahead
Opposition to building the 250-foot arch, and using it for military purposes, is growing with one Democrat blasting Trump's plans as "foolhardy".
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
Borgaryfirvöld í Tókýó, höfuðborg Japans, hafa til skoðunar að grípa til hertra aðgerða til að halda borginni hreinni. Borgarstjórinn Yuriko Koike til...
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
📅 25.09.2026 👁️ 2
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. S...
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
📅 25.09.2026 👁️ 3
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás og hótanir gegn manni í ágúst 2023. Meðal þess sem fimmmenningunum er gef...
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
📅 25.09.2026 👁️ 3
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
Kúhegri sást í Vestmannaeyjum í dag. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar sem vitað er til að hafi sést þar.Tígull greindi fyrst frá.„Þeir eru fremur sja...
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
📅 25.09.2026 👁️ 3
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Zohran Mamdani borgarstjóra í New York og gefi fátækum frímiða í Þjóða...
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
📅 25.09.2026 👁️ 2
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
Such strikes aim to disrupt "people's ability to stay connected, study, work", says Ukraine's president.
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
Að sögn lögreglu var maðurinn hræddur um að sér hefðu verið seld léleg fíknefni. Vildi hann fá lögreglu til að komast til botns í þessu. Ekki kemur fr...
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
📅 25.09.2026 👁️ 3
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
Bandarísk stjórnvöld hafa stungið upp á því að sendinefndir Rússlands og Úkraínu ræði saman í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á næstunni. Þetta tilky...
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
Hreppurinn greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem birtar eru sömuleiðis myndir af umfangi skriðunnar sem þveraði veginn. „Það er áfram m...
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
Lokunin stendur yfir frá klukkan fimm að morgni og til klukkan 22 um kvöldið. Brautin verður lokuð við Þingtorg og Selásbraut og við nýju gatnamótin o...
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
📅 25.09.2026 👁️ 3
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
Rangfeðraður maður telur sig vita hver raunverulegur faðir hans er. Sá maður er þó látinn sem flækir málin. Sá rangfeðraði hefur höfðað mál til að fá ...
Breiðholtsbraut lokað á morgun
📅 25.09.2026 👁️ 2
Breiðholtsbraut lokað á morgun
Breiðholtsbraut í Reykjavík verður lokuð vegna malbikunar milli klukkan 5 og 22 á morgun, laugardag.Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.Lokað...
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
📅 25.09.2026 👁️ 3
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
The rock band go back to their roots, playing a gig in the Dublin playground where they first met.
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
📅 25.09.2026 👁️ 3
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Sa...
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
📅 25.09.2026 👁️ 3
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Framkvæmdastjóri True North segir yfir 100 manns á vegum fyrirtækisins koma...
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
Birt voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í samráðsgátt fyrr í dag. Lögin eru byggð á tillögum úr fjölmiðlapakka sem ...
Olíuleki á Seltjarnarnesi
📅 25.09.2026 👁️ 3
Olíuleki á Seltjarnarnesi
Mikil olía lak á Lindarbraut og Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Vegfarendur voru varaði við hálku vegna þessa.María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjó...
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
📅 25.09.2026 👁️ 3
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum RÚV má fækka út­varps­stöðv­um verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt...
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
Guðmundur Ingi fór ítarlega yfir aðdraganda og eftirmál afsagnar sinnar úr embætti mennta- og barnamálaráðherra í Reykjavík síðdegis. Guðmundur sagði ...
Húsbíll fauk út af - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Húsbíll fauk út af - Vísir
Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af ve...
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
📅 25.09.2026 👁️ 3
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
The prime minister told the BBC an early poll would throw the country into a "backward-looking process".
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 3
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 3
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 3
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
British climber dies after falling 60m on Spanish mountainside
📅 25.09.2026 👁️ 0
British climber dies after falling 60m on Spanish mountainside
The identity of the 28-year-old man, who fell down a vertical gully to his death, is yet to be confirmed.
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 3
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 2
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 3
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 2
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 3
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 3
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 3
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...