Landsréttur fellir úr gildi synjun móður um að leyfa nýtt mat á transferli barns

Landsréttur hefur fellt úr gildi synjun móður um að leyfa nýtt mat á transferli barns.
Alex Da Rocha faðir 10 ára drengs missti forsjá sonar síns fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í desember síðastliðnum þar sem móðirin vill setja barnið í transmeðferð, faðirinn telur slíka meðferð ekki vera barninu fyrir bestu.
Sett var af stað söfnun fyrir Alex til að áfrýja til Landsréttar þar sem hann freistar þess að fá héraðsdómnum snúið við. Sonur hans greindist með einhverfu á síðasta ári en móðirin hóf „umbreytingarferli“ drengsins þegar hann var 7 ára. Það hófst með nafnabreytingu og síðan er stefnan sett á kynþroskabælandi lyf sem hefur ýmsar aukaverkanir og mun m.a. gera drenginn ófrjóan.
Landréttur hefur nú gripið til mun harðari aðgerða, og fellt úr gildi synjun móðurinnar um að leyfa nýtt mat og fyrirskipaði nýtt óháð mat hjá viðurkenndum sérfræðingssálfræðingi í barna- og kynjamálum. Þá fyrirskipaði dómstólinn Landspítalanum að stöðva tafarlaust alla meðferð trans-teymisins fyrir barnið.
Alex segir í samtali við Fréttina að þetta sé í fyrsta skipti sem dómari við hærra dómstig í raun sagt:
„Við munum ekki einfaldlega sætta okkur við „nei“ eins foreldris. Við munum stöðva meðferðina. Við munum skoða raunverulega sálfræðilega stöðu barnsins betur.“
Hann segist vera hóflega bjartsýnn um framhaldið en niðurstaðan gefi honum þó smá von um réttlæti fyrir son sinn.
Alex segist hafa barist einn fyrir syni sínum og upplifi sig eilítið í eyðimörkinni. „Á þessum feðradegi, á meðan aðrir feður fagna með kortum og gjöfum, þá berst ég fyrir barni mínu í lokuðum réttarsal og reyni að vernda það frá kerfi sem næstum enginn þorir lengur að efast um.
Ég er eina foreldrið sem ber á mig kostnaðinn, áhættuna og þrýstinginn. Það er engin stór stofnun á bak við mig. Engin fjármögnun. Bara faðir sem neitar að þegja eða gefast upp,“segir faðirinn.
Alex segir baráttu hans ekki vera hatursherferð, heldur herferð fyrir tíma, sannleika og vandlegt mat áður en lífsbreytandi og óafturkræf meðferð er framkvæmd á barni.
„Sem faðir er þetta hjartnæmt. Ég finn fyrir ótta, reiði, ást og von – allt í einu. En ég get ekki gengið í burtu. Barnið mitt á aðeins eitt foreldri sem er tilbúið að berjast svona.“
Óskar eftir stuðning
Til að halda með málið áfram þarf Alex að greiða um 2. milljónir króna fyrir mat og viðtöl sérhæfðs lífssálfræðings, ásamt því að greiða fyrir áframhaldandi lögfræði- og sérfræðikostnað.
Alex segir að lokum að ósk hans sé einföld:
„Að engu foreldri verði refsað fyrir að biðja um ítarlegt mat og óháða skoðun áður en 10 ára barn er sett á lyf sem ekki teljast nauðsynleg. Að ekkert barn sé dregið í gegnum öfluga læknismeðferð án ítarlegrar rannsóknar um gagnsemi og/eða skaða ásamt virku eftirliti.“
Hægt er að leggja honum lið með því að leggja inn á eftirfarandi reikning: eða smella á söfnunina hér.
Færslu föðurins má sjá hér neðar: