Bandaríska kvikmyndin Ferris Bueller´s Day Off kom út 11. júní árið 1986, sló í gegn og á enn 40 árum síðar stóran hóp aðdáenda. Myndin fjallar um Ferris (Matthew Broderick) sem tilkynnir sig veikan í skólanum og fær kærustu sína, Sloane (Mia Sara), og besta vin sinn Cameron (Alan Ruck) með sér í lið til að eiga geggjaðan dag í Chicago.Í tilefni af 40 ára afmælinu settist þríeykið niður og rifjaði upp tökurnar og viðurkennir Sara að hún hafi ekki skemmt sér eins vel á bak við myndavélarnar eins og persóna hennar í myndinni.
Stjarnan úr Ferris Bueller's Day Off lýsir erfiðri reynslu við tökur