Stærsta arðgreiðslan fyrir Skólamat fram til þessa
Félagið Skólamatur sem selur skólamötuneytum mat hagnaðist um 274 milljónir króna fyrir skatt í fyrra og greiðir nú meira í arð.
Fjölskyldufélagið Skólamatur ehf. sem sér um matinn í leik- og grunnskólum víðast hvar á höfuðborgarsvæðinu greiddi eigendum sínum 90 milljónir króna í arð í fyrra og stefnir á að greiða 100 milljónir í arð á þessu ári.
Það þýðir að eigendurnir, Axel Jónsson og börn hans, Fanný Sigríður Axelsdóttir og Jón Axelsson, sem eiga 30% hlut hvert, fá 30 milljónir króna hvert í greiðslur eða 23,4 milljónir króna eftir fjármagnstekjuskatt, á þessu ári.
Í fyrra, þegar 90 milljónir króna voru greiddar í arð, átti Axel 67% í félaginu, en hann hefur nú framselt 37% hlutar í félaginu til barna sinna og félagsins sjálfs.
Máltíðir í grunnskólum voru gerðar gjaldfrjálsar á þarsíðasta skólaári með niðurgreiðslum frá ríkinu. Kostnaður vegna þess var áætlaður 3,7 milljarðar króna, en í Reykjavíkurborg einni og sér reyndist hann 1,7 milljarðar króna í fyrra. Þar af greiddi ríkið tæplega 1,3 milljarða króna fyrir gjaldfrjálsar máltíðir í Reykjavík. …