Hvalveiðar „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar“
„Stóra spurningin er sú hvað raunverulega vakir fyrir Kristjáni Loftssyni úr því að hann tapar aðeins fjárhagslega á veiðunum?“ spyr Dýraverndarsamband Íslands. Samtökin gagnrýna harðlega veiðar á langreyðum í nótt.
„Þessu verður ekki lýst öðruvísi en sem villimannslegum veiðum sem eiga sér enga stoð í nútímanum,“ segir í yfirlýsingu sem Dýraverndarsamband Íslands sendi frá sér vegna hvalveiða. En í nótt var fyrsta langreyðurin í tvö ár veidd við Ísland. Tvær langreyðar voru veiddar af hvalveiðiskipinu Hvali 9.
Sambandið segist harðlega mótmæla veiðunum sem það kallar „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar út frá viðskiptahagsmunum Hvals hf. og aðaleiganda þess Kristjáns Loftssonar. Þrátt fyrir að engar hvalveiðar hafi verið stundaðar í tvö ár, og þær þar áður verið takmarkaðar, eru enn birgðir af hvalkjöti í frystigeymslum sem enginn markaður er fyrir.“
„Stóra spurningin er sú hvað raunverulega vakir fyrir Kristjáni Loftssyni úr því að hann tapar aðeins fjárhagslega á veiðunum?“ spyrja samtökin í tilkynningu sinni.
Þar segir að fagráð um velferð dýra hafi komist að þeirri niðurstöðu sumarið 2023 að veiðar á langreyðum „stæðust vart lög um velferð dýra og að engin …