Vegna reiknivillu fengu Friðrik Danakonungur og Margrét, móðir hans, hærri greiðslur úr ríkissjóði en lög gerðu ráð fyrir. Danska forsætisráðuneytið viðurkennir mistökin í bréfi til fjármálanefndar þjóðþingsins og Danska ríkisútvarpið segir frá.
Mistökin tengjast breytingum sem gerðar voru á fjárveitingum til konungshallarinnar eftir að Friðrik tók við krúnunni í fyrra. Ofgreiðslan nam 300 þúsund dönskum krónum á síðasta ári, sem jafngildir sex milljónum íslenskra króna. Heildarframlög til konungsfjölskyldunnar nema um 100 milljónum danskra króna á ári.
Í tilkynningunni segir að peningarnir verði endurgreiddir.