Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir úr Hvalfirði sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, tók í dag.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er Hvalur 8 væntanlegur inn að hvalstöðinni um klukkan 21 í kvöld með eina langreyði. Hvalurinn veiddist síðdegis í gær vestur af landinu um 190 sjómílur frá landi. Hvalur 9 sigldi aftur til veiða í morgun eftir að hafa landað fyrstu tveimur langreyðunum.
Dýraverndarsamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem veiðunum er mótmælt. Samtökin segja veiðarnar „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar“. Hvalveiðar hafi ekki verið stundaðar í tvö ár og enn séu birgðir af hvalkjöti í frystigeymslum sem enginn markaður sé fyrir.
Í kvöldfréttum á Sýn í gær var rætt við Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness, sem sagði upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi.