Heitasti dagur frá upphafi mælinga í Frakklandi var í dag, samkvæmt veðurstofu landsins. Mælingar hófust 1947, fyrir 79 árum.
Meðalhiti dags og nætur á 30 veðurstöðvum náði 29,8 átta stigum. Fyrra met var frá því 25. júlí 2019 og 5. ágúst 2003 þegar hiti mældist 29,4 stig.
Einnig mældist hæsti hiti sem nokkurn tíma hefur verið skráður, 44,3 gráður, í Pissos í suðvesturhluta landsins.
Fjölmörg hitamet hafa fallið í vesturhluta landsins vegna hitabylgjunnar sem hefur verið í Frakklandi síðan í síðustu viku. Aðfararnótt þriðjudags var einnig heitasta nótt síðan mælingar hófust.
Í höfuðborginni París lokuðu Eiffel-turninn og Louvre-safnið, tveir vinsælustu ferðamannastaðir í heiminum, fyrr en opnunartími segir til um vegna hitabylgjunnar. Auk þess voru 1800 skólar lokaðir í dag og 800 lokuðu fyrr en venjulega.
Samkvæmt veðurstofu landsins hafa 52 hitabylgjur orðið síðan mælingar hófust 1947, þar af 35 frá 2000 og 27 síðan 2011. Vísindamenn telja loftslagsbreytingar helstu orsökina.