Mynd um ævi poppdrottningarnar Madonnu hefur lengi verið í vinnslu og enn lengur í umræðu, enn enn bólar ekkert á myndinni. Í forsíðuviðtali tímaritsins Interview, sem kom út mánudaginn 22. júní, segir Madonna að ekkert hafi orðið af myndinni vegna rifrildis hennar og Universal Studios um fjárhagsáætlunina.„Ég átti að gera kvikmynd um líf mitt. Ég vann að handritinu í tvö ár og eyddi tveimur árum hjá Universal Studios með framleiðendum sem sáu um fjárhagsáætlun og leikaraval.“
Madonna útskýrir af hverju ævisöguleg mynd hennar varð ekki að veruleika