Samhjálp fær ekki að koma fyrir kaffistofu við Grensásveg 46. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi samþykkt umsóknar Samhjálpar um að endurinnrétta húsið fyrir nýja kaffistofu í dag.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík gaf Samhjálp byggingarleyfi til að innrétta veitingastað í húsinu í mars.
Starfsemin hefur verið á hrakhólum síðan í september þegar hún flutti úr húsnæði sínu í Borgartúni. Samhjálp tók húsnæðið við Grensásveg 46 á leigu í fyrra en þar er einnig kjötverslun, tannlæknastofa og íbúðir.
Margir íbúar hverfisins hafa gert athugasemdir við nýja staðsetningu kaffistofunnar og það voru nágrannar sem kærðu samþykkt byggingarleyfisins til úrskurðarnefndarinnar. Í kærunni var einkum vísað til áhyggja af mögulegum áhrifum starfseminnar á nærumhverfi, börn í hverfinu og fasteignaverð.
Hefði þurft að breyta deiliskipulagi
Lóðin á Grensásvegi er ódeiliskipulögð en gera hefði þurft deiliskipulag fyrir hana áður en Reykjavíkurborg samþykkti byggingarleyfi fyrir húsnæðið, að mati úrskurðarnefndarinnar.
„Það að þessa var ekki gætt verður að telja til verulegs annmarka á undirbúningi hins kærða byggingarleyfis. Verður af þeim sökum að fallast á kröfu kærenda um ógildingu þess,“ segir í úrskurðinum.
Sumir íbúar vildu enn fremur meina að kaffistofan stríddi gegn gildandi aðalskipulagi en ekki var fallist á þau sjónarmið.
Úrskurðarnefndin gerði þá athugasemdir við það að Reykjavíkurborg hafi ekki kynnt ráðgerða notkun húsnæðisins betur í grenndarkynningu áður en leyfi var veitt fyrir kaffistofunni. Þá lá ekkert mat fyrir þegar kynningin fór fram um hver líkleg áhrif kaffistofunnar yrðu á nærumhverfið.