Varnarmálaráðherrann Wes Streeting, sem sjálfur er opinberlega samkynhneigður, hvatti öll þau úr röðum hinsegin fólks sem þola máttu brottrekstur úr hernum eða annað óréttlæti að sækja um bætur fyrir 12. desember þegar fresturinn rennur út.
Streeting kveðst aldrei á ævinni hafa orðið var jafnmikillar og harkalegrar andúðar á hinsegin fólki í færslum á netinu en síðan hann tók við ráðherradómi í júlí. „Fólk ræður ekki við þá hugmynd að samkynhneigður einstaklingur gæti stýrt hernum,“ sagði hann í hlaðvarpinu Iain Dale All Talk í síðasta mánuði.
Ríkisstjórnin hét því árið 2024 að greiða öllum þeim sem voru rekin vegna kynhneigðar 50 þúsund pund hverju. Það jafngildir um 8,2 milljónum íslenskra króna. Árið áður baðst þáverandi forsætisráðherra Rishi Sunak innilega fyrirgefningar á þeim ógnum og ofsóknum sem hinsegin fólk hefur mátt þola innan hersins.
Lægri bætur fyrir annars konar misrétti
Þau sem máttu þola rannsóknir vegna kynhneigðar, ofsóknir eða agaviðurlög af einhverju tagi eiga rétt á 20 þúsund punda greiðslu. Alls voru 75 milljónir punda eyrnamerktar í þessum tilgangi.
Á vefsíðu ríkisstjórnarinnar segir að 1.892 hafi þegar sótt um bætur, sem aðeins eru ætlaðar hermönnum á lífi en ekki afkomendum þeirra. Fyrrverandi hermenn og afkomendur þeirra geti einnig sótt um að fá opinbera afsökun eða athöfn til uppreisnar æru. Þegar hafa fjörutíu slíkar verið haldnar.
Á árunum 1967 til 2000 var öllu hinsegin fólki, lesbíum, hommum, tvíkynhneigðum og trans fólki, meinað að gegna herþjónustu sem Streeting segir hafa valdið mörgum þeirra miklum skaða. Karl III konungur lagði á síðasta ári blómsveig að nýju minnismerki um hinsegin fólk sem þjónaði í breska hernum.