Helgin verður frekar vætusöm, sérstaklega á sunnanverðu landinu. Mun úrkomuminna verður fyrir norðan en þar blotnar þó eitthvað.
Austlæg eða breytileg átt verður ráðandi í dag, fimm til þrettán metrar á sekúndu. Svalast verður austanlands en hlýrra annars staðar, hiti frá 4 til 15 stig.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Austlæg eða breytileg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, og rigning með köflum, einkum sunnantil, en súld austanlands og norðanlands með kvöldinu. Hiti 4 til 15 stig, svalast austanlands.
Suðaustlæg eða breytileg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, en hægari austantil fram eftir degi og þurrt að mestu þar. Annars víða rigning með köflum, einkum sunnanlands, og bætir í úrkomu síðdegis. Hiti breytist lítið, en hlýnar austanlands að 13 gráðum.