Væri frá­bært ef Land­spítalinn vildi reka leik­skóla - Vísir

Væri frá­bært ef Land­spítalinn vildi reka leik­skóla - Vísir

Væri frá­bært ef Land­spítalinn vildi reka leik­skóla - Vísir

Hildur reynir að vera sofnuð fyrir miðnætti og að byrja daginn ekki á sælgæti. Hún segir það draum að sofa sjö, átta tíma á nóttunni en stundum raski börnin þeim draumi. 

Hildur segir það kalla á góða skipulagningu að vera borgarstjóri og að eiga fjölskyldu. Það létti á henni að geta reitt sig á meirihlutann sinn en svo skipti baklandið miklu máli. Eiginmaður, tengdaforeldrar og foreldrar hafi aðstoðað mikið í kosningabaráttunni.

„Hún var ánægjuleg og sérstök,“ segir Hildur um tilfinninguna að taka við lyklunum að borgarstjóraskrifstofunni. Hún hafi verið í þeytivindu í kosningunum og svo í meirihlutaviðræðum og hafi ekkert endilega áttað sig á stöðunni fyrr en í gær þegar hún mætti til vinnu og settist niður á nýju skrifstofunni. Rætt var við Hildi í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Nýr meirihluti tók við á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og birti þá verkefnalista sinn á sérstakri heimasíðu. Þar er að finna fjölda verkefna sem eru tímasett. Það er 100 daga plan, plan fyrir fyrsta árið og svo plan fyrir kjörtímabilið og var stefnuyfirlýsing Sjálfstæðisflokksins í kosningunum sett upp með sama hætti.

Hildur segir fyrstu verkefnin hafa verið sett í ferli á fyrsta borgarstjórnarfundinum og meðal þeirra hafi verið að fela henni að ræða við nágrannasveitarfélög og ríkisstjórnina um endurskoðun á samgöngusáttmálanum.

Hildur með eiginmanni sínum, Jóni Skaftasyni. Hún segir stuðning hans ómetanlegan. Vísir/Vilhelm

Taka umræðu um samgöngusáttmála

Hildur segir að í gegnum tíðina hafi umræðan um borgarmálin verið í skotgröfum, ekki síst um samgöngumál, og einhverjir upplifi að hér hafi verið rekin öfgastefna og valkostum þeirra fækkað. Nýr meirihluti ætli að taka þessa umræðu um samgöngusáttmálann og þá helst fjármögnun sáttmálans. Gert sé ráð fyrir veggjöldum á gamla stofnvegi, Sæbraut og Ártúnsbrekku, og meirihlutinn sé ósáttur við það. Hún ætli því að hefja það samtal núna.

„Við viljum líka skoða hvernig við getum raðað verkefnum upp á nýtt,“ segir Hildur og að nýr meirihluti vilji til dæmis taka Miklubrautargöngin út úr sáttmálanum. Þau eigi ekki að raungerast fyrr en 2028 og það sé of seint. Þau vilji setja göngin í einkaframkvæmd og koma þeim í gagnið fyrr og með hraði.

Hildur tók við borgarstjórastólnum af Heiðu Björg Hilmisdóttur í vikunni. Vísir/Vilhelm

Hildur segir að á meðan það ríki óvissa um fjármögnun sáttmálans verði alltaf óvissa um hann. Á meðan þau horfi á að 143 milljarðar, um helmingur fjármögnunar, eigi að koma í gegnum veggjöld, þá verði allt í frosti.

„Ef þú vilt vita að þú getir klárað verkefnið verðurðu að vita að þú eigir fyrir því,“ segir Hildur og að þetta sé dæmi um það. Verkefnið fari í stopp hvort eð er ef fjármagnið er ekki tryggt. Nýr meirihluti stefni þannig að því að endurraða og endurskipuleggja án þess að tefja framkvæmdir.

Hún segir nýjan meirihluta ekki á móti gjaldtöku þegar á við um nýjar framkvæmdir, eins og Miklubrautargöngin, og það verði að tryggja að fólk geti ferðast aðra leið sem er gjaldfrjáls. Sömuleiðis hafi alltaf legið fyrir að Sundabraut eigi að fjármagna með veggjöldum og þau séu ekki mótfallin því, heldur að setja eigi gjaldtöku á gamla vegi.

Ekki gerst áður að allir oddvitar eigi leikskólabörn

Hildur fór svo í leikskóla- og daggæslumálin. Oddvitar meirihlutans séu öll foreldrar ungra barna

„Ég er ekki viss um að það hafi áður gerst að oddvitarnir hafi allir verið með leikskólabörn eins og við,“ segir hún og að þess vegna séu þessi mál sett á oddinn. Nýr meirihluti sé opinn fyrir fjölbreyttari lausnum en sá sem áður var. Þau ætli að hefja samtal strax við fyrirtæki og stofnanir um vinnustaðaleikskóla eða daggæslu.

Oddvitar meirihlutans eiga öll leikskólabörn. Vísir/Vilhelm

„Ef Landspítalinn til dæmis hefði áhuga á að reka leikskóla væri það stórkostlegt og við myndum vinna með þeim að því,“ segir Hildur og að á Norðurlöndum séu leikskólar með sveigjanlegri opnunartíma.

Það sé enginn að tala um að lengja vistunartíma barnanna, heldur að hliðra til tíma vistunar þannig að hann sé í samræmi við vinnutíma foreldra.

„Þetta er samtal sem þarf að eiga,“ segir Hildur.

Hún segir daggæslu Arion til dæmis hafa heppnast vel og hún sé góð fyrirmynd að því sem þau stefni að.

Hildur segir margt áhyggjuefni hvað varðar húsnæðismál og að sveitarfélag geti gert ýmislegt til að liðka fyrir húsnæðisuppbyggingu og létta á uppbyggingaraðilum. Borgin hafi lagt miklar kvaðir á húsnæðisuppbyggingu sem valdi auknum kostnaði og töfum, sem leggist svo á húsnæðisverð.

„Við viljum gefa miklu meira frelsi þeirra sem byggja húsnæði að þróa vöru sem eftirspurn er eftir,“ segir Hildur.

Borgin hafi hingað til haft mikil afskipti af því hvernig íbúðir eru byggðar. Hún tók svo dæmi um uppbyggingaraðila sem vill breyta gömlu skrifstofuhúsnæði í miðbænum í íbúðarhúsnæði og hafa nokkrar stúdíóíbúðir en þá segi borgin að það eigi að vera fjögurra herbergja íbúð því það væri gott ef það byggi þarna fjölskylda.

„Alveg óháð því hvort það hafi einhver fjölskylda áhuga á að búa þarna,“ segir Hildur og að þau líti svo á að markaðurinn viti hvaða vörur séu söluvænlegar.

Hildur segir til dæmis skipulag Keldnalands þannig að gert sé ráð fyrir töluvert færri bílastæðum en íbúum og það sé skipulag sem nýr meirihluti vilji endurskoða. Byggingaraðilar hafi lýst því yfir að þeir vilji ekki kaupa byggingarrétt.

Borgin að þróa vöru sem enginn vill kaupa

„Þarna er borgin að þróa einhverja vöru sem fólk vill ekki kaupa,“ segir hún og að gert sé ráð fyrir að byggingaraðili taki áhættu með vöru sem þeir gætu svo setið eftir.

Hún segir meirihlutann vilja breyta skipulaginu þarna verulega og nefnir að á verkefnalista meirihlutans sé að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar.

„Af því að það er mismunandi eftir svæðum hver bílastæðaþörfin er.“

Hildur segir nýjan meirihluta auk þess ætla að tryggja að afgreiðslufrestir verði ekki lengri en 30 dagar og að það sé til dæmis hægt að nota gervigreind í það. Þá séu ýmsar kvaðir um til dæmis verslunarrými á neðstu hæð sem virki ekki að hennar mati og það þurfi einnig að breyta gatnagerðargjöldum þannig að það sé ekki hagstæðara að byggja bílastæðahús en bílastæðakjallara, eins og er núna.

Hvað varðar tekjuleiðir segir Hildur engan tekjuvanda hjá borginni, það streymi tekjur úr útsvari og fasteignasköttum, arðgreiðslur úr dótturfyrirtækjum og svo sé hægt að fá sölutekjur með því að selja land eða fyrirtæki. Þau ætli til dæmis að selja malbikunarstöðina Höfða, Ljósleiðarann og Carbfix.

Mörg tækifæri til að skera niður

„Það eru rosa tækifæri til að skera niður,“ segir hún og að hún hafi talað umbúðalaust um það og aðrir flokkar í meirihluta. Hún telji sig hafa skýrt umboð til þess. Hildur segist einnig hafa áhyggjur af veikindahlutfalli starfsmanna og hana langi að skoða þetta.

Hildur ræddi að lokum tækifæri sem felast í notkun gervigreindar og að hún muni leysa einhver störf af hólmi og það sé óumflýjanlegt. Það sé hægt að nota hana í stafrænni umbreytingu og ýmsum skipulagsferlum.

Hildur segir það fyrirsjáanlega gagnrýni að þau ætli að hagræða en stofni svo þrjú ný ráð. Þegar hún tali um niðurskurð þá sé hún að tala um yfirbyggingu. Þau hafi lagt niður stafrænt ráð og með því sé hægt að fækka störfum. Þá hafi verið stofnað öldungaráð sem hafi áður verið stofnað en verið sett undir mannréttindaráð, sem sé til skoðunar, og það geti orðið frekari breytingar.

Vilji meiri skilvirkni í ráðin

Þau hafi svo skipt niður grunnskóla- og leikskólamálunum því þau séu tímafrek og þung mál og það eigi að auka skilvirkni að skipta þessu niður. Það sama eigi við um skiptingu íþrótta- og menningarráðs og þau vilji lyfta menningunni upp.

Hildur talaði svo að lokum um íbúasamráð og að meirihlutinn ætli að standa með íbúum og hlusta á þá, vilji vera í virku og lifandi samstarfi við þá og margt á þeirra verkefnalista sé viðbragð við því sem þau hafa heyrt frá íbúum.

„Við erum spennt fyrir samtalinu, spennt að vinna fyrir Reykvíkinga og ég hef sagt það að ég ætla ekki bara að vera borgarstjóri minna kjósenda, þótt ég sannarlega ætli það. Ég vil vera borgarstjóri allra Reykvíkinga og ég vil að hér geti allir fengið að blómstra.“

#frábært #landspítalinn #reka #vildi #væri


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262892966d/vaeri-frabaert-ef-landspitalinn-vildi-reka-leikskola

📰 Aðrar fréttir

Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
📅 18.10.2026 👁️ 0
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
Fjölda órangútanapa hefur verið bjargað á síðustu vikum frá miklum skógareldum sem geisa í Indónesíu.Mengun af völdum eldanna hefur dreifst víða um Su...
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
Rúmenskar F-16 orrustuþotur skutu niður tvo dróna sem flugu yfir Svartahafi innan rúmenskrar landhelgi í gær. Þetta hefur þýski fréttamiðillinn Deutsc...
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
📅 18.10.2026 👁️ 0
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
BBC News hears from users, dealers, prison and recovery workers as the country battles with a deadly new drug epidemic.
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
📅 18.10.2026 👁️ 3
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta se...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 3
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 2
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
Number of casualties unknown in "very, very active and delicate" situation in Alberta, says defence minister.
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna ...
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
📅 18.10.2026 👁️ 3
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
An historic town hall in the southern French city of Limoges was set ablaze during national protests.
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
📅 18.10.2026 👁️ 3
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
New filings show the world's richest person spent this summer again trying to help Republicans win office, with most of his focus on one candidate.
How The Traitors' music plays with your emotions
📅 18.10.2026 👁️ 0
How The Traitors' music plays with your emotions
It's not just treachery and villainy - the soundtrack for Traitors helps set the show's campy tone.
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
📅 18.10.2026 👁️ 3
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
The sports industry's lucrative business model is being undermined by dodgy TV sticks and illegal streaming links, writes Theo Leggett.
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.  „Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond. Birta Huld er hársnyrtir hjá Session...
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
📅 17.10.2026 👁️ 4
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
The Times reports soldiers accused of murder were sent into war zones while still under police investigation.
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
📅 17.10.2026 👁️ 4
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
Diane Watson's best friend Pauline recalls a shocking school murder and its lasting legacy.
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist haf...
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hefur beðið fyrrum kollega sinn úr þingflokknum afsökunar á ummælum sem féllu í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.Þa...
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninu...
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og...
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrae...
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
📅 17.10.2026 👁️ 4
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
Satellite images give clues about how Kim spends his holidays - something far out of reach for most North Koreans.
Biður Jón af­sökunar - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Biður Jón af­sökunar - Vísir
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undan...
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
📅 17.10.2026 👁️ 4
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
WBO world champion Daniel Dubois underlines his status as Britain's leading heavyweight with a devastating second-round stoppage of Fabio Wardley.
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
📅 17.10.2026 👁️ 4
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
Demonstrations across the country turned violent, with cars and buildings set alight and shops ransacked.
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemen...
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...
Anti-government protesters battle with police in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 4
Anti-government protesters battle with police in Albania
There were violent clashes between demonstrators and riot police throughout Saturday in the capital Tirana.
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
Rúm hálf milljón tók þátt í mótmælunum í Frakklandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu innanríkisráðuneytis Frakklands. Af þeim 550.000 sem mótmælt...
„Verið að spila með líf fólks“
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Verið að spila með líf fólks“
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Seðlabankann hafa gengið of langt með því að skapa viljandi efnahagsaðstæður sem auka at...
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
„Það er mikið dómsdagstal því það eru átök svo víða og mannréttindi eru brotin í stórum stíl. Við sjáum þessa nýju tilhneigingu til þess að valdamikli...
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur h...
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir hótun og barnaverndarbrot samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sem féll þa...
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
Ari tekur við af Illuga Gunnarssyni sem hefur gegnt formennsku frá því í febrúar á þessu ári. Í stjórn voru einnig kjörin Elísabet Freyja Úlfarsdóttir...
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
Jakob Hansen aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kaupmannahöfn segir við danska ríkisútvarpið að lögreglumenn hafi handtekið tvo hvorn í sínum mótmælum við Kó...
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
Tveir drengir undir 18 ára að aldri eru í haldi grunaðir um tilraun til manndráps eftir að ung kona var skotin í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænska ríkisú...
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
Au pair er franska og gæti sem best þýtt jafningi á íslensku. Hugtakið er notað yfir ungt fólk, aðallega konur, sem sækjast eftir vist hjá fjölskyldum...
France protests: Violent clashes, looting and buildings ablaze as over 1,000 arrested
📅 17.10.2026 👁️ 3
France protests: Violent clashes, looting and buildings ablaze as over 1,000 arrested
Disorder broke out in cities across the country on a day in which more than half a million joined cost of living protests.
France protests: Violent clashes, looting and buildings ablaze as over 1,200 arrested
📅 17.10.2026 👁️ 0
France protests: Violent clashes, looting and buildings ablaze as over 1,200 arrested
Disorder broke out in cities across the country on a day in which more than half a million joined cost of living protests.
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
📅 17.10.2026 👁️ 4
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
The Israeli military condemns the violence but the prime minister's office says it is part of a "smear" campaign.
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
📅 17.10.2026 👁️ 4
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig Fréttin17. október 2026Dómsmál, ErlentLeave a Comment Bro...
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
„Já, það er mjög hvasst hérna og líka byrjað að rigna. Þetta er nánast orðið að stormi,“ sagði Marim, starfsmaður á veitingastaðnum Sker í Ólafsvík. H...
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
📅 17.10.2026 👁️ 4
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
BBC Scotland's political editor Glenn Campbell reflects on John Swinney's SNP conference speech.
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbra...
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
Ísraelskt landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra í þorpinu Taybeh í dag. Landtökufólk herjar reglulega á íbúa í þorpinu. Bernard B...
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 17.10.2026 👁️ 4
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið á...
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gærkvöldi að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra eftir að tilkynning hafði borist um s...
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
Í grein sinni bendir Björg Eva til að byrja með á að gagnaverið At-north á Íslandi hafi nýlega birt leikna auglýsingu um starfsemi sína, þar sem gagna...
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
Orðið á götunni er að Marta María Winkel í Smartlandi Morgunblaðsins hafi hitt naglann á höfuðið er hún skrifaði um sundferð fimm þingmanna stjórnaran...
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
Umræddur dómur var kveðinn upp í Landsrétti í gær. Karlmaður, sem áður hefur verið dæmdur fyrir nauðgun, var ákærður í annað sinn fyrir nauðgun og dæm...
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
📅 17.10.2026 👁️ 5
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
Franskur mótmælandi missti aðra höndina í borginni Saint-Etienne í dag. Þetta var annar mótmælandinn til að missa hönd í álíka aðstæðum í miklum mótmæ...