Yfirvöld á eyjunni Rota í Kyrrahafi segja að þeim hafi borist fjöldi tilkynninga frá íbúum eyjunnar um umfangsmiklar eyðileggingar af völdum ofurfellibylsins Bavi sem fór yfir Norður-Marianas-eyjur í Kyrrahafi í morgun að staðartíma.
Auga fellibylsins náði yfir alla Rota-eyju og vindhraðinn mældist um 80 metrar á sekúndu samkvæmt veðurfræðingi á eyjunum.
Rota-eyja er syðsta eyjan í eyjaklasanum og um 1500 íbúar eru búsettir á eyjunni. Ekki hefur verið greint frá manntjóni en afleiðingar fellibylsins eru ekki að fullu leyti ljósar enn sem komið er. Fellibylurinn er að ganga yfir en nokkuð hvasst var einnig á norðurhluta Guam sem er sunnan Rota-eyju. Samanlagður íbúafjöldi á Norður-Marianas-eyjum og Guam er um 210.000 manns.
Hátt hitastig sjávar hefur áhrif á hitabeltisstorma
Evrópska loftslagsstofnunin Kóperníkus segir að hitastig sjávar hafi aldrei mælst jafn hátt í júnímánuði og enn gæti hitastig hafsins átt eftir að hækka. Þegar hitastig hafsins er hátt aukast líkur á hitabeltisstormum og raki eykst sem verður af miklu úrhelli.
Þá hefur Alþjóðaveðurfræðistofnunin varað við því að El Niño-hafstraumurinn verði einkar öflugur í ár. Það getur haft áhrif á hitafar, úrkomu og veðuröfgar víða um heim.