Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi dælubíla til Hafnarfjarðar um klukkan 16 vegna tilkynningar um eld og reyk á neðri hæð inni í íbúðarhúsi.
Upphaflega héldu dælubílar frá fjórum slökkvistöðvum á vettvang. Tveimur þeirra var snúið við þar sem umfangið virtist ekki mikið.
Þetta staðfestir Gunnar Vilhjálmsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Gunnar segir útkallið hafa reynst tilefnislaust. Enginn eldur hafi fundist í húsinu. Slökkvilið er farið af vettvangi.
Fréttin hefur verið uppfærð.