Stjórnvöld á Taívan sáu sig knúin til að árétta eigið sjálfstæði nokkrum klukkustundum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti kvaðst andvígur því að eyríkið lýsti yfir sjálfstæði.
„Taívan er fullvalda og sjálfstætt lýðræðisríki og ekki undirorpið valdi Alþýðulýðveldisins Kína,“ segir í yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins í morgun. Ráðuneytið áréttaði jafnframt að Bandaríkin hefðu formlega skuldbundið sig til að selja Taívan vopn.
Það væri ekki síður sameiginleg fæling gagnvart ógnunum í heimshlutanum. Trump ýjaði að einhvers konar endurskoðun á vopnasölunni eftir fund hans með Xi Jinping Kínaforseta, sem þrýsti á hann að hætta eða draga úr stuðningi við Taívan.
Kínversk stjórnvöld líta á eyríkið sem óaðskiljanlegan hluta alþýðulýðveldisins. Talsmaður Lai Ching-te forseta Taívans hefur þakkað Bandaríkjunum og Trump langvarandi stuðning við landið í sérstakri yfirlýsingu.
Forsetinn og yfirlýsingar hans um fullveldi Taívans eru mikill þyrnir í augum kínverskra stjórnvalda. Hann hafi skaðað illilega vinsamleg samskipti milli landanna. Ríkisstjórnir Bandaríkjanna hafa í gegnum árin ræktað sambandið við Taívan ásamt því að byggja upp diplómatísk tengsl við kínversk stjórnvöld.
Trump sagði strax eftir fundina með Xi að Kínaforseti vildi ekki fara í stríð við Taívan og að stefna Bandaríkjanna varðandi málefni þess væri óbreytt. Bandaríkin viðurkenna ekki fullveldi Taívan formlega, ekki frekar en flest ríki heims.