Þrír leikmenn landsliðs Kosta Ríku í fótbolta hafa verið teknir úr landsliðshópi þjóðarinnar fyrir vináttuleik við England í næsta mánuði.
Ástæðan er skotárás sem leikmaðurinn Alejandro Bran varð fyrir þegar hann var í bíl sínum seint að nóttu eftir mikla áfengisdrykkju.
Engin slys urðu á fólki en samkvæmt ESPN skutu liðsfélagar hans Kenneth Vargas og Warren Madrigal á bíl Brans.
Í yfirlýsingu þeirra kemur fram að þeir hafi einfaldlega verið á röngum stað á röngum tíma og hafi ekkert með skotárásina að gera en enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.