Fyrst var greint frá þessu á Skessuhorni en þar kemur einnig fram að samkvæmt samkomulagi flokkanna verði Sigurður Guðmundsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, formaður byggðarráðs og Jovana Pavlovic, oddviti Borgarbyggðarlistans, forseti sveitarstjórnar. Í málefnasamningi þeirra sé lögð áhersla á að byggja upp sterkt og sjálfbært samfélag þar sem velferð íbúa og ábyrg fjármál fari saman.
Sjálfstæðisflokkurinn varð stærstur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í kosningunum í maí og féll þar með meirihluti Framsóknarflokksins í bænum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 29,3 prósent atkvæða og þrjá fulltrúa í níu manna sveitarstjórn og Borgarbyggðarlistinn 23,5 prósent atkvæða og tvo fulltrúa. Þannig mynda þau fimm manna fulltrúa.
Framsóknarflokkurinn fékk 25,4 prósent atkvæða og tvo fulltrúa og Miðflokkurinn 21,9 prósent atkvæða og tvo fulltrúa líka.
Stefán Broddi Guðjónsson gegndi embætti sveitarstjóra á síðasta kjörtímabili en í sveitarfélaginu er meðal annars að finna Borgarnes, Hvanneyri, Reykholt, Bifröst, Varmaland og Kleppjárnsreyki. Sveitarfélögin sameinuðust á síðasta ári.