Lögreglan í London hefur hafið morðrannsókn eftir að unglingspiltur lést af völdum stunguárása í Hackney hverfinu í austurhluta borgarinnar á sunnudagskvöld. Atvikið átti sér stað eftir veislu þar sem tilkynnt hafði verið um óspektir og að fólk á svæðinu væri vopnað sveðjum.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru lögreglumenn kallaðir út eftir tilkynningar um stóran hóp fólks, átök og einstaklinga með sveðjur. Á leið á vettvang bárust lögreglu svo tilkynningar um hnífstungu og að skotum hefði verið hleypt af.
Pilturinn var alvarlega særður þegar sjúkraflutningamenn og þyrla komu á vettvang. Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á fórnarlambið og hafa samband við aðstandendur.
Myndbönd tekin upp á síma
Rannsóknarlögreglumaðurinn Ben Massink sagði að fjöldi fólks hefði verið á svæðinu þegar árásin átti sér stað og að sumir hefðu tekið upp myndbönd af atvikinu á farsíma sína.
Hann hvatti vitni og þá sem væru með myndskeið til að afhenda lögreglu efnið í stað þess að dreifa því á samfélagsmiðlum af virðingu við fjölskyldu hins látna.
Ótti meðal íbúa
Málið hefur vakið mikinn ótta meðal íbúa á svæðinu. Foreldri sem býr nærri vettvangi sagði við fjölmiðla að slíkar samkomur væru iðulega til vandræða.
„Sem foreldri er ég hrædd um barnið mitt á hverjum degi,“ sagði foreldrið og bætti við að götupartí á svæðinu enduðu oft með átökum.
Borgarstjórinn í Hackney, Zoë Garbett, sagðist vera harmi slegin vegna morðsins og sendi aðstandendum piltsins samúðarkveðjur. Hún sagði alvarlegt ofbeldi meðal ungs fólks valda miklum áhyggjum í samfélaginu.
Lögreglan hefur aukið viðveru sína í hverfinu meðan rannsókn stendur yfir. Engar handtökur höfðu verið staðfestar þegar fréttin er skrifuð.