Ungt fólk úr ólíkum stjórnmálahreyfingum kom saman á Hótel Borg á þjóðhátíðardaginn þar sem ýtt var úr vör nýjum samstarfsvettvangi undir heitinu Ung gegn ESB-aðild. Athygli vekur að að verkefninu standa ungliðahreyfingar fimm stjórnmálaflokka sem eru ósammála um margt annað í íslenskum stjórnmálum, en hafa sameinast um andstöðu við aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Samkvæmt upplýsingum sem birtust í aðdraganda fundarins er markmið félagsins að skapa breiðan þverpólitískan vettvang ungs fólks sem telur hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins. Stofnfundurinn var haldinn á Hótel Borg þann 17. júní og vakti talsverða athygli vegna þess hve breið pólitísk samstaða birtist þar um eitt af stærstu deilumálum íslenskra stjórnmála um þessar mundir.
„Greinir líklega á um flest“
Snorri Másson lýsti fundinum í færslu á Facebook í kvöld þar sem hann sagðist hafa orðið var við óvenjulega samstöðu þvert á pólitískar línur.
„Þær ungliðahreyfingar fimm stjórnmálaflokka sem hafa komið sér saman um þann samstarfsvettvang, sem þar var ýtt úr vör, greinir líklega á um flest en eitt segja þær nú saman: Hagsmunum okkar Íslendinga er betur borgið utan Evrópusambandsins,“ skrifaði Snorri.
Hann sagði jafnframt að fundurinn hefði einkennst af fjölbreyttum hópi ungs fólks, allt frá sósíalistum og róttæklingum yfir í fólk sem hann lýsti sem „ofurvenjulegu en metnaðarfullu ungu fólki af öllu litrófi íslenskra stjórnmála“.
Margar ástæður fyrir neinu
Snorri vísaði einnig til orða formanns ungra Framsóknarmanna sem ræddi málið í kvöldfréttum RÚV og sagði að „til væru margar útgáfur af nei-inu“.
Að sögn Snorra kom það skýrt fram í erindum fundarmanna að þátttakendur væru ekki allir andvígir ESB af sömu ástæðum. Sumir lögðu áherslu á fullveldi, aðrir á efnahagsmál, auðlindir eða lýðræðislega ákvarðanatöku. Þrátt fyrir það hafi hópurinn náð saman um sameiginlega niðurstöðu.
„Það má því heita lofsvert að þessar ólíku stjórnmálahreyfingar hafi getað náð svona vel saman,“ skrifaði hann.
Segir málið ekki einkamál eins flokks
Í færslunni hafnaði Snorri þeirri hugmynd að andstaða við aðild að Evrópusambandinu væri bundin við einn stjórnmálaflokk.
„Andstaða við Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar er ekki einkamál eins stjórnmálaflokks, heldur grundvallarhagsmunamál fyrir íslenska þjóð,“ skrifaði hann.
Hann sagðist jafnframt stoltur af þátttöku félaga sinna í Miðflokknum og bjartsýnn eftir að hafa hitt „öflugan hóp af ungu fólki“ sem hefði trú á Íslandi og vildi byggja upp sterkt samfélag en jafnframt að landsmenn héldu áfram að ráða sínum málum sjálfir.
Stofnun félagsins kemur á sama tíma og undirbúningur stendur yfir fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið sem fyrirhuguð er síðar á árinu.