Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) í Vestmannaeyjum annaðist aukinn viðbúnað á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina og segir stofnunin að öryggi gesta og íbúa hafi verið tryggt með öflugri mönnun og góðu samstarfi við viðbragðsaðila.
Samkvæmt HSU á Facebook komu um 95 manns á heilsugæsluna yfir helgina og 52 leituðu í sjúkraskýlið í Herjólfsdal. Þar tókst að sinna langflestum þeirra sem þangað komu og aðeins örfáir þurftu frekari meðferð á heilsugæslunni yfir nóttina.
Sérstök stemning að vinna á Þjóðhátíð
„Það er alltaf sérstök stemning sem fylgir því að vinna á Þjóðhátíð. Flestir eru í góðu skapi og allir leggja sig fram um að gera sitt besta,“ er haft eftir Þórunni Pálsdóttur, hjúkrunarfræðingi í Vestmannaeyjum, sem kom að undirbúningi og stjórnun starfseminnar á heilsugæslunni yfir hátíðina.
Hún bendir einnig á að margir starfsmenn sinni fjölbreyttum verkefnum samhliða störfum sínum hjá HSU.
„Við sem erum að vinna erum jafnframt mörg að undirbúa hátíðina með okkar fjölskyldum og mörg sinna einnig öðrum verkefnum fyrir ÍBV yfir helgina. Þegar helgin er að baki eru því flestir orðnir þreyttir, en jafnframt stoltir af góðu samstarfi og vel unnu verki.“