Úkraínsk stjórnvöld hafa farið þess á leit við Alþjóðaflugmálastofnunina að hún banni almenna flugumferð aðildarríkja hennar um rússneska lofthelgi.
Þetta kemur fram í erindi til stofnunarinnar sem Reuters-fréttaveitan kveðst hafa undir höndum. Í gær tilkynntu Úkraínumenn stofnuninni að þeir teldu lofthelgina ekki lengur örugga vegna sívaxandi hernaðarátaka. Hætta geti verið á að farþegaflugvélar verði fyrir eldflaugum eða drónum sem Rússar og Úkraínumenn skjóta hvor að öðrum nánast á hverjum einasta degi.