Diljá vakti fyrst athygli með sigri sínum í Söngvakeppninni árið 2023 og sem fulltrúi Íslands í Eurovision. Hún er óhrædd við að vera hrá í textasmíði sinni og með þessu lagi sýnir hún enn persónulegri og einlægari hlið.
Samhliða útgáfunni kemur út tónlistarmyndband í leikstjórn Ásgeir Sigurðsson, en kvikmyndataka var í höndum Antons Karls Kristenssen. Myndbandið styður að sögn Diljár við tilfinningaheim lagsins og fangar spennuna á milli ástar, óvissu og sjálfsleitar sem liggur að baki verkinu.
Hér má sjá myndbandið:
„Lagið markar nýjan kafla í minni tónlistarsköpun þar sem persónulegri textar fá aukið rými. Ó Rómeó fjallar um að týna sjálfum sér til að þóknast öðrum, að gefa of mikið af sér í sambandi þar til eigin rödd og sjálfsmynd fer að dofna.
Lagið dregur fram þá togstreitu sem getur myndast þegar leitast er eftir samþykki eða ást frá Rómeó, jafnvel á kostnað eigin velferðar,“ segir Diljá.
Lagið var samið af Diljá ásamt Hákoni Guðni sem jafnframt framleiddi lagið. Hér má hlusta á það á streymisveitunni Spotify.